Fotbolti.net
Besta deildin
Magnús Atlason
Besta karla - Efri hluti
Víkingsvöllur
11°, sól og lygnt en loftgæðin ekki frábær.
Víkingur R.
Víkingur R.
4 - 1
Keflavík
Keflavík
Daníel Hafsteinsson 21'1 - 0Róbert Orri Þorkelsson 29'2 - 0Stígur Diljan Þórðarson 31'3 - 0Stígur Diljan Þórðarson 47'4 - 04 - 158' Muhamed Alghoul
Dómari: Pétur Guðmundsson

SKÝRSLAN: Víkingar aftur á sigurbraut

Hvað réði úrslitum?

Gæði og ákefð Víkinga réðu úrslitunum. Víkingar voru hreinlega tilbúnari heldur en Keflavík, alveg frá upphafsflautinu. Það var ekki nema undir lok leiks þar sem gestirnir sáu eitthvað til sólar.

Bestu leikmenn

1. Stígur Diljan Þórðarson (Víkingur)

Skoraði tvennu í dag og hótaði þrennunni. Var ítrekað hættulegur í og í kringum teig Keflvíkinga sem réðu illa við hann. Má samt vera heppinn að hafa ekki verið fyrir innan í fyrra markinu.

2. Róbert Orri Þorkelsson (Víkingur)

Skoraði stórkostlegt mark eftir hornspyrnu og var gríðarlega öflugur í vörninni og í uppspili og sóknarmyndun Víkinga.

Atvikið

Mark Daníels Hafsteinssonar á 21. mínútu. Frábært spil hjá fyrrum liðsfélögum hjá KA sem endaði með flottri afgreiðslu. Flóðgáttir opnuðust í kjölfarið og þrjú mörk voru skoruð á 10 mínútum.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingar komast upp í 56 stig og endurheimta níu stiga forskot á toppnum. Það gæti minnkað um stig ef Fram vinnur Breiðablik annað kvöld. Deildin er því farin að líta ágætlega út fyrir þá.

Keflavík mistekst að lyfta sér upp fyrir ÍA og Breiðablik í fjórða sætið. Í staðinn sigla þeir lygnan sjó í sjötta sæti, með 28 stig, tveimur stigum frá ÍA og Blikum.

Vondur dagur

Vörn Keflavíkur réð illa við Víkinga í dag svo ég skrifa þetta á hana alla. Það var oftar en ekki allt opið í fyrirgjöfum og það endaði tvisvar með marki, í öðru og fjórða marki Víkings. Það vantaði skipulag og hún réð ekki við Víkingssóknina, sérstklega í fyrri hálfleik.

Dómarinn - 9

Get ekki sett neitt út á þessa frammistöðu hjá Pétri í dag. Hann hafði fulla stjórn á leiknum og massaði allar ákvarðanir. Það voru einhver köll um víti sem hann gaf lítið í, og það var hárrétt metið, ekkert á það og áfram gakk. Mjög flottur í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.