Fotbolti.net
Besta deildin
Kári Snorrason
Kári Snorrason
Besta karla - Efri hluti
Lambhagavöllurinn
Grátt yfir og átta gráður
Fram
Fram
1 - 3
Breiðablik
Breiðablik
0 - 130' Kennie Knak Chopart (sjm)0 - 245' Gabríel Snær HallssonRóbert Hauksson 49'1 - 21 - 366' Ásgeir Helgi Orrason
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Áhorfendur: 762

SKÝRSLAN: Stálust Framarar í bikarfögnuð Blika?

Hvað réði úrslitum?

Framarar virtust ólíkir sjálfum sér og ef það var þynnka yfir öðru hvoru liðinu þá var það yfir Frömurum. Blikar mættu vel skipulagðir og vörðust vel. Lærðu af reynslunni og slepptu því að pressa Framara hátt. Niðurstaðan sú að fyrri hálfleikurinn var einn sá leiðinlegasti sem undirritaður hefur séð þrátt fyrir að Blikar hefðu skorað tvö mörk. Framarar ógnuðu í seinni hálfleik og minnkuðu muninn snemma. Mark Ásgeirs Helga fyrir Blika reyndist dýrmætt og virtist öll trú fara úr Framliðinu eftir þriðja mark Kópavogsliðsins.

Bestu leikmenn

1. Ásgeir Helgi Orrason (Breiðablik)

Skoraði mikilvægt mark og var traustur í vörn Blika.

2. Anton Ari Einarsson (Breiðablik)

Þurfti að hafa fyrir hlutunum, þá sérstaklega undir lok leiks. Steig varla feilspor í markinu - lítið hægt að setja út á hann í marki Framara.

Atvikið

Þessa nafnbót fá bæði lið fyrir að skapa ekki eitt einasta atvik til að ræða um fyrstu 29 mínútur leiksins. Fyrir utan mörkin tvö í fyrri hálfleik gerðist nákvæmlega ekki neitt. Guð blessi Óskar Hrafn ef hann var að horfa.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingur getur tryggt Íslandsmeistaratitilinn á Meistaravöllum í næstu umferð. Framarar eru tveimur stigum á eftir KR í baráttunni um annað sætið og Blikar styrkja stöðu sína í 4. sætinu.

Vondur dagur

Kennie Chopart var langt frá sínu besta í dag. Skorar sjálfsmark sem kemur úr hornspyrnu sem hann gaf sjálfur. Sást lítið til Vuk í leiknum og Viktor Freyr fékk þrjú mörk á sig úr þremur skotum Blika á markið.

Dómarinn - 8

Langt frá því að vera erfiðasti leikur heims til að dæma en Sigurður Hjörtur og félagar stóðu sig með stakri prýði.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.