Fotbolti.net
Fótbolti.net
Fótbolti.net
Evrópukeppni unglingaliða
VÍS völlurinn
Þór U19
Þór U19
3 - 4
Zalgiris U19
Zalgiris U19
0 - 11' Vakaris Berenta0 - 224' Dovydas EidukaitisÓlíver Sesar Bjarnason 26'1 - 21 - 338' Vakaris BerentaStefán Björn Svavarsson 74'2 - 3Rúnar Daði Vatnsdal Sveinsson 76'3 - 33 - 477' Vakaris Berenta
Dómari: Ross Hardie (Skotland)

SKÝRSLAN: Klár möguleiki í Litháen

Hvað réði úrslitum?

Klaufaskapur Þórsara. Þór var betur spilandi liðið heilt yfir í þessum skemmtilega leik en gestirnir frá Zalgiris komu tilbúnari og voru ákveðnari í sínum aðgerðum í byrjun og nýttu sér svo slæm mistök til að skora þriðja markið. Þór var með fína stjórn á leiknum en Zalgiris gerði líka vel og leikplanið leit út fyrir að ganga nokkuð vel upp hjá gestunum. Það var gaman að sjá hversu vel var mætt á VÍS völlinn en tilfinningin var sú að vel á þriðja hundrað manns hefðu komið saman í rigningunni og horft á Evrópuleik í Þorpinu.

Bestu leikmenn

1. Óliver Sesar Bjarnason

Mjög góð frammistaða framarlega á miðjunni hjá Þór. Vann margar stöður þar sem gestirnir voru í bölvuðu brasi með hann og þurftu að rífa í hann. Skoraði svo fyrsta mark Þórs og hefði getað skorað eða búið til fleiri. Vakaris Berenta var auðvitað besti maður vallarins en Óliver var besti maður Þórs fannst mér.

2. Ásbjörn Líndal Arnarsson

Þór spilar mjög sóknarsinnaðan bolta og ég veit ekki hversu oft Ásbjörn bjargaði aftarlega á vellinum með góðum leiklestri. Leið vel inni á vellinum og spilaði vel. Vil líka nefna Stefán Björn sem kom af krafti inn í leikinn af bekknum.

Atvikið

3-3 markið. Frábær sókn og mjög snyrtileg afgreiðsla hjá Rúnari. Þór náði að jafna leikinn en hélt þeirri stöðu reyndar ekki lengi.

Hvað þýða úrslitin?

Zalgiris fer með eins marks forystu heim til Litháen og mætast liðin þar í seinni leiknum 14. október. Sigurvegarinn mætir írsku meisturunum í St. Patrick's Athletic.

Vondur dagur

Jósef Orri tók margar góðar ákvarðanir í leiknum og leisti úr mörgum stöðum, en sending hans inn á miðjuna í stöðunni 1-2 var bara mjög léleg og kostaði á endanum mark, svekkjandi augnablik.

Dómarinn - 8

Heilt yfir mjög góður og var lítið að hika mikið með gulu spjöldin.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.