SKÝRSLAN: Blikasigur í Eyjum
Hvað réði úrslitum?
Blikar settu í annan gír í seinni hálfleik eftir bragðdaufan fyrri hálfleik. Þær fengu helling af færum til að klára leikinn fyrr en Guðný Geirsdóttir sá til þess að gera þetta meira spennandi og sigurmarkið kom ekki fyrr en á 79. mínútu leiksins.
Bestu leikmenn
1. Guðný Geirsdóttir
Guðný átti frábæran leik í marki ÍBV. Án hennar hefði Breiðablik getað skoraði svona 4-5 mörk í viðbót.
2. Agla María Albertsdóttir
Er alltaf mikilvæg í liði Breiðabliks og ber fyrirliðabandið með sæmd. Skoraði úr vítaspyrnunni af miklu öryggi og tók svo aukaspyrnuna sem Breiðablik skoraði annað markið upp úr.
Atvikið
Vítaspyrnan sem Breiðablik fékk. Klaufalegt hjá Kristínu Klöru Óskarsdóttir sem felldi Katelyn inn á teignum þegar hún var við það að skjóta. Blikar jafna þá í 1-1. Voru fyrir það búnar klúðra svo mikið af færum.
Hvað þýða úrslitin?
Breiðablik nældi sér í þrjú mikilvæg stig í toppbaráttunni við FH. Eru með 43 stig á toppi deildarinnar, en FH getur með sigri á morgun gegn Grindavík/Njarðvík jafnað þær að stigum. ÍBV er áfram í þriðja sætinu með 30 stig.
Vondur dagur
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir fékk urmul af dauðafærum til að jafna leikinn fyrir Breiðablik en var ekki á sínum degi fyrir framan markið.
Dómarinn - 6
Mér fannst dómgæslan aðeins halla á ÍBV í leiknum. Blikar voru að fá aukaspyrnur fyrir það sem ÍBV fékk ekki. Fyrir utan það fínn leikur hjá Þorfinni og á hann alls ekki sök á tapi ÍBV.



