Fyrir leik
Spámaðurinn
Fyrir leik
Dómarinn
Stefán Ragnar Guðlaugsson er með flautuna hér í dag. Óliver Thanh Tung Vú og Ingibjörg Garðarsdóttir Briem eru honum til aðstoðar auk Atla Björns E Levy sem er fjórði dómari. Eftirlitsmaður KSÍ er svo Sigurður G Friðjónsson.

Fyrir leik
Fjórða sætið og stolt er það sem er undir hjá Suðurnesjaliðinu í þessum lokaleikjum mótsins. Í raun stórgott fyrir nýliða í deildinni þegar horft er heildrænt yfir tímabilið og ekki versnar það þegar bikarúrslit koma þar inn líka þó tapið þar svíði eflaust enn.
Hvernig mun liðið nálgast leikinn nú þegar að "litlu" er að keppa verður forvitnilegt. Ég á þó frekar von á því að heimakonur mæti af krafti til leiks enda virðast skilaboðin úr Reykjanesbæ vera nokkuð skýr ef miðað er við tímabilið í ár. Liðið er mætt til að vera í efstu deild.

Grindavík/Njarðvík

Gestirnir úr Hafnarfirði eiga í harðri titilbaráttu við Breiðablik. Sigur Blika á ÍBV í gær gaf þeim þriggja stiga forskot á toppnum en því bili ætlar lið FH sér væntanlega að loka í dag. Það stefnir allt í rosalega baráttu á toppnum og alls ekki ólíklegt að við stefnum í hreinan úrslitaleik um titilinn í lokaumferðinni.
FH átti Evrópuleik í miðri viku þar sem liðið atti kappi við Eintracht Frankfurt frá Þýskalandi. Fór svo að þýska stórliðið vann nauman 1-0 sigur þar sem eina mark leiksins kom úr vítaspyrnu.

FH

Leikdagur í Reykjanesbæ
Heil og sæl læru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá leik Grindavík/Njarðvík gegn FH en flautað verður til leiks á JBÓ vellinum klukkan 14:00

Um leikinn í Grindavík sagði John.
Grindavík/Njarðvík 1 - 4 FH
Grindavík/Njarðvík heldur áfram að gefa ungum leikmönnum tækifæri og byggja upp þetta spennandi verkefni, en krafturinn í FH verður of mikill að þessu sinni. Þar sem grasið er ekki Grindavík/Njarðvík í hag í þessum leik sé ég FH stjórna leiknum að mestu. Julia Ruth skorar fyrir heimakonur en Thelma, Deja og Andrea skora snemma fyrir FH áður en Elín Björg klárar dæmið með frábæru einstaklingsframtaki undir lokin.