Fotbolti.net
Baldvin Már Borgarsson
Baldvin Már Borgarsson
Undankeppni EM U21
PEPSI völlurinn
Grátt, blautt og 10°c.
Ísland U21
Ísland U21
5 - 1
Sviss U21
Sviss U21
Daníel Tristan Guðjohnsen 11'1 - 0Benoný Breki Andrésson 45'2 - 02 - 146' Labinot BajramiDavíð Helgi Aronsson 62'3 - 1Daníel Tristan Guðjohnsen 79'4 - 1Hilmir Rafn Mikaelsson 86'5 - 1
Dómari: Jakob Semler (Austurríki)
Áhorfendur: 341.
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

SKÝRSLAN: Sviss slátrað í Laugardalnum

Hvað réði úrslitum?

Okkar drengir voru bara fáránlega góðir í þessum leik og hreinlega slátruðu gestunum út um allan völl.

Bestu leikmenn

1. Daníel Guðjohnsen - Ísland

Maður lifandi, þvílík gæði, þvílík frammistaða.

2. Galdur Guðmundsson - Ísland

Gjörsamlega stórkostlegur, lagði upp tvö og átt að leggja upp fleiri, eiginlega óheppinn hvað Daníel Tristan var góður því Galdur var með maður leiksins frammistöðu.
Næstu menn á eftir sem voru gjörsamlega stórkostlegir voru Daníel Freyr, Eggert Aron og Kjartan Már, eða bara allt liðið maður, vel gert boys!

Atvikið

Fyrsta markið, þvílíkt samspil, taktar og gæði, reyndar annað markið líka og fleiri, bara atvik hvað við erum ógeðslega góðir!

Hvað þýða úrslitin?

Okkar strákar komnir í umspilsséns, sem er frábært, þurfum að vinna Færeyjar og treysta á að Sviss vinni ekki Frakka, eigum við ekki bara að trúa á það?

Vondur dagur

Loun í hægri bakverði Sviss var tekinn af velli í hálfleik, eðlilega. Amin og Galdur búnir að gjörsamlega eyðileggja þennan dreng, Hákon Haralds gæti þurft að gefa honum smá huggunarknús þegar þeir hittast aftur í Lille.

Dómarinn - 9

Ekkert upp á að klaga, vel gert Austurríkismenn!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.