Fotbolti.net
Besta deildin
Kári Snorrason
Kári Snorrason
Besta karla - Efri hluti
Eikarvöllurinn
Góður blástur og rigning
Breiðablik
Breiðablik
3 - 1
Keflavík
Keflavík
Viktor Karl Einarsson 18'1 - 0Jónatan Guðni Arnarsson 69'2 - 02 - 176' Eiður Orri RagnarssonHöskuldur Gunnlaugsson 91'3 - 1
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Áhorfendur: 411
Leik lokið!
Blikar fara með sigur af hólmi!
Arnar Ingi flautar til leiksloka, lokatölur 3-1. Viðtöl og skýrsla væntanleg.
92. mín
Blikar segja 411 manns í stúkunni, það eru góðar ýkjur. Ef ég myndi skjóta væri ekki mikið meira en 200 manns hérna.
Breiðablik
91. mín
HERFILEG MISTÖK

Höskuldur Gunnlaugsson

Nacho með ægilega sendingu til baka á Ásgeir markvörð sem Höskuldur kemst inn í. Fyrirliði Blika fer framhjá Ásgeiri og setur boltann í autt netið.
90. mín
Þremur mínútum bætt við
Breiðablik
90. mín
InnGabríel Snær Hallsson
ÚtViktor Karl Einarsson
89. mín
Frábær varsla!
Axel Ingi með slaka sendingu til baka sem Arnar Bjarki kemst inn í. Arnar er einn gegn markverði og tekur skotið en Ásgeir Orri ver meistaralega með fætinum.
Keflavík
88. mín
InnRúnar Leó Hólmarsson
ÚtAlpha Conteh
Keflavík
83. mín
InnArnór Atli Aðalbjörnsson
ÚtMate Simicic
Keflavík
83. mín
InnBaldur Logi Brynjarsson
ÚtViktor Árni Traustason
Breiðablik
83. mín
InnDagur Örn Fjeldsted
ÚtÍvar Örn Árnason
Breiðablik
83. mín
InnArnar Bjarki Gunnleifsson
ÚtÞorleifur Úlfarsson
Keflavík
76. mín
Við erum með leik!

Eiður Orri Ragnarsson (stoðsending: Alpha Conteh)

Keflvíkingar keyra hratt upp, Conteh þræðir Eið í gegn sem lætur vaða í nærhornið og inn fer boltinn.

Gylfi Berg hefði átt að gera betur þarna í marki Blika, eins og hann hafi búist við skotinu í fjærhornið.
74. mín
Ljubicic með skot úr þröngri stöðu sem fer rétt framhjá marki Blika.
Breiðablik
69. mín
InnDavíð Ingvarsson
ÚtKristinn Steindórsson
Breiðablik
69. mín
InnBirkir Þorsteinsson
ÚtJónatan Guðni Arnarsson
Tekinn strax af velli eftir markið.
Breiðablik
69. mín
ÚR EFSTU HILLU!

Jónatan Guðni Arnarsson

Jónatan við vítateig, sker inn á hægri fótinn og smellir honum bara í samskeytin fjær!

Ekki ósvipað mark og Jeremy Doku skoraði gegn Liverpool fyrr í dag.
68. mín
Skemmtileg tilraun!
Eiður Orri klippir boltann skemmtilega rétt framhjá marki Breiðabliks. Keflvíkingar að sækja í sig veðrið.
66. mín
Keflvíkingar fá aukaspyrnu á stórhætulegum stað. Ljubicic tekur en tilraun hans beint í vegginn.
63. mín
STÓRSÓKN KEFLVÍKINGA!
Eiður Orri með huggulegt utanfótarskot sem fer í stöngina og þaðan í bakið á Gylfa, markverði Blika. Boltinn rúllar framhjá markinu og boltinn fer manna á milli í teig Breiðabliks. Axel Ingi fær boltann og hamrar honum svo í varnarmann og aftur fyrir endalínu.
59. mín
LED Auglýsingaskilti Breiðabliks eitthvað að klikka og það kemur agressívt gult blikk með stuttu millibili. Hefur amk. truflandi áhrif á mig, spurning með leikmennina.

Segir sitthvað um leikinn þegar maður er farinn að skrifa um auglýsingaskiltin.
56. mín
Dagur Ingi með laust skot beint á Gylfa Berg sem ver örugglega í marki Blika.
55. mín
Voðalega mikil Lengjubikarslykt af þessu
Lítil gæði, veðurguðirnir ekki með okkur í liði og ákefðin á undanhaldi.

48. mín
Eiður Orri með skot fyrir utan teig sem fer rétt framhjá marki Blika.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Búið að bæta í vindinn og þá hefur vindáttinn sömuleiðis breyst, meiri hliðarvindur núna en í fyrri hálfleikur.
Keflavík
46. mín
InnÍgnacio Heras Anglada
ÚtEgill Valur Karlsson
Keflavík
46. mín
InnÁsgeir Páll Magnússon
ÚtSindri Snær Magnússon
Keflvíkingar gera tvöfalda breytingu í hálfleik
45. mín
Hálfleikur
Arnar Ingi flautar til loka fyrri hálfleiks. Langt frá því að vera skemmtilegustu 45 mínútur sem ég hef séð og greinilegt að það sé lítið undir fyrir bæði lið.
45. mín
Kiddi Steindórs með skot úr teignum en boltinn langt framhjá marki gestanna.
43. mín
Óli Valur og Viktor Karl spila vel á milli sín. Viktor kemur með sendingu fyrir mark Keflvíkinga en boltinn í varnarmann og þaðan í krumlurnar á Ásgeiri.
37. mín
Voðalega rólegt yfir þessu. Bæði lið að komast í fínustu stöður en vantar að klára sóknirnar.
29. mín
Lítið búið að gerast eftir mark Breiðabliks. Keflvíkingar lítið sem ekkert reynt á Gylfa Berg í marki Blika.
Breiðablik
18. mín
Huggulegt!

Viktor Karl Einarsson (stoðsending: Óli Valur Ómarsson)

Viktor Karl brýtur ísinn!

Óli Valur með frábæran undirbúning og sker boltann út í teiginn. Viktor tekur skotið viðstöðulaust, það er ekki fast en boltinn fer í bláhornið.
15. mín
Blikar hættulegri
Þorleifur með góða tilraun úr teignum en Ásgeir Orri sér við honum.
13. mín
Jónatan Guðni gerir vel og á þrumuskot rétt yfir mark gestanna.
8. mín
Frábær varsla!
Blikar fá horn, Hlynur Freyr með hnitmiðaðan skalla í bláhornið en Ásgeir Orri ver meistaralega í marki Keflvíkinga!
6. mín
Sendir Hlyn Frey á bossann
Dagur Ingi með góðan sprett upp vinstri kantinn og sendir Hlyn á rassinn. Nálgast vítateig Blika og missir þar boltann of langt frá sér.
4. mín
Keflvíkingar fá fyrstu hornspyrnu leiksins eftir góða sókn. Ljubicic með skalla að marki en Blikar bægja hættunni frá.
3. mín
Veðrið er ekkert upp á marga fiska. Kalt, mikill vindur og stöku skúrir. Þakklátur fyrir að vera staddur inn í blaðamannaboxinu góða.
2. mín
Jónatan Guðni á fast skot úr teignum en boltinn nokkuð beint á Ásgeir Orra sem ver örugglega í marki Keflvíkinga.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað
Dagur Ingi Valsson á upphafsspark leiksins. Keflvíkingar leika fyrri hálfleikinn gegn vindi, sækja í átt að Digranesinu.
Fyrir leik
Liðin ganga til vallar, andrúmsloftið ekkert rafmagnað enda lítið undir hér í kvöld.
Fyrir leik

Fyrir leik
Hinn 18 ára Gylfi Berg byrjar í marki Blika
Ólafur Ingi Skúlason gerir heilar sex breytingar á byrjunarliði sínu frá 4-1 tapi liðsins gegn ÍA í síðustu umferð fyrir landsleikjahlé.

Anton Ari Einarsson tekur sér sæti á bekknum og byrjar hinn 18 ára gamli Gylfi Berg Snæhólm í marki Breiðabliks.

Þá koma þeir Ívar Örn Árnason, Höskuldur Gunnlaugsson, Viktor Karl Einarsson, Kristinn Steindórsson og Jónatan Guðni Arnarsson sömuleiðis inn í liðið.

Úr liðinu víkja þeir Kiddi Jóns, Davíð Ingvars, Gabríel Snær, Viktor Örn og Dagur Fjeldsted.

Haraldur Freyr Guðmundsson gerir tvær breytingar frá 2-2 jafntefli Keflavíkur gegn Fram í síðustu umferð.

Inn koma þeir Axel Ingi Jóhannesson og Viktor Árni Traustason. Á bekkinn víkja þeir Elvis Bwomono og Frans Elvarsson.
Fyrir leik
Blikar þurfa að gera betur
Arnar Grétarsson, fyrrverandi þjálfari og leikmaður Breiðabliks, fór yfir tímabilið í Bestu í samtali við Fótbolta.net á dögunum. Þrátt fyrir að vera Bliki er Arnar gagnrýninn á frammistöðu Breiðabliks í sumar.

Hann segir Bikarmeistaratitillinn hafi bjargað miklu, enda fylgir honum Evrópusæti á næsta ári, en spilamennskan í deildinni hafi ekki verið nægilega góð.

„Mér finnst að það hafi verið allt of margar frammistöður sem voru einfaldlega ekki nógu góðar. Þeir unnu leiki snemma í sumar án þess að spila vel, en síðan fór þeim að ganga verr,“ segir hann.

Hann telur að skoða þurfi samsetningu leikmannahópsins og hvort þörf sé á breytingum. Breiðablik sé með dýran og að mörgu leyti sterkan hóp, en það dugi ekki eitt og sér.

„Það þarf eitthvað að breytast. Ef þessi spilamennska heldur áfram fara þeir ekki langt, ef við tölum alveg hreina íslensku.“

Arnar telur jafnframt að Víkingar geti litið til baka með nokkurri eftirsjá vegna undanúrslitaleiksins gegn Breiðabliki í Mjólkurbikarnum. Hann telur að færri breytingar á byrjunarliði Víkings hefðu getað gert leikinn erfiðari fyrir Blika.

Hann bendir þó á að það sé jákvætt fyrir félagið að hafa tryggt sér bikarmeistaratitilinn og Evrópusæti, sérstaklega með tilliti til fjárhags og möguleika á að laða að leikmenn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Keflvíkingar með mörg skotmörk
Hér að neðan má sjá alla slúðurmola frá Keflavík sem birtist í slúðurpakka .net í síðustu viku.

Þorsteinn Aron Antonsson gæti yfirgefið HK í vetur og hefur heyrst að Keflavík horfi til hans.

Oumar Diouck, Bragi Karl Bjarkason og Freysteinn Guðnason, leikmenn Njarðvíkur, hafa verið á óskalista grannanna í Keflavík og buðu Keflvíkingar nýlega í bæði Freystein og Oumar. Valur hefur jafnframt áhuga á Freysteini og Oumar vill ekki fara til grannanna.

Ásgeir Orri Magnússon hefur átt mjög gott tímabil í marki Keflavíkur og er á blaði hjá félögum erlendis. Víkingur hefur einnig augastað á markmanninum.

Patrekur Aron Grétarsson (KFA) er fluttur suður og það er áhugi á honum frá meðal annars Keflavík.

Sindri Snær Magnússon, Nacho Heras, Ernir Bjarnason og Frans Elvarsson eru að renna út á samningi hjá Keflavík. Sindri Snær hefur verið orðaður við endurkomu til ÍR. Það þykir líklegt að Frans verði ekki áfram leikmaður liðsins eftir þetta tímabil.

Davíð Snær Jóhannsson er sömuleiðis orðaður við heimkomu en Keflvíkingurinn gæti einnig endað í græna hluta Kópavogs.

Fyrir leik
Blikaslúður - Margir á útleið?
Fótbolti.net birti mjög svo stóran slúðurpakka í síðustu viku og hér að neðan má sjá alla helstu Blikamolana.

Höskuldur Gunnlaugsson og Viktor Örn Margeirsson eru orðaðir við Val. Slúðrið er á þá leið að annað hvort fari þeir eða þjálfarinn Ólafur Ingi Skúlason. Viktor Karl Einarsson er sömuleiðis orðaður við Val.

Jökull Elísabetarson, Eiður Smári Guðjohnsen og Magnús Már Einarsson eru kostir nefndir í tengslum við Breiðablik kjósi félagið að gera þjálfarabreytingu.

Kristófer Ingi Kristinsson með lausan samning og vill fara aftur út í atvinnumennsku, Breiðablik vill halda honum og Valur hefur áhuga eins og áður. Langt er á milli þess sem Breiðablik hefur boðið Kristófer og því sem hann vill fá.

Blikar hafa áhuga á Mikael Mána Þorfinnssyni, leikmanni Grindavíkur en hann er eftirsóttur af félögum í Bestu og er einnig áhugi erlendis frá, m.a. í Danmörku.

Viðar Ari Jónsson er á leið heim og er Breiðablik meðal liða sem hafa áhuga á honum. Blikar hafa einnig augastað á Daða Berg Jónssyni, sem er orðaður frá Víkingi, og Bjarti Bjarma Barkarsyni, leikmanni Aftureldingar.

Hlynur Freyr Karlsson er á láni hjá Breiðabliki frá Brommapojkarna. Búist er við því að bæði Valur og Breiðablik reyni að kaupa U21 landsliðsmanninn sem uppalinn er hjá Blikum og lék vel með Val tímabilið 2023.

Jón Kristinn Elíasson (Víkingur Ó.) hefur verið að æfa með Breiðabliki og gæti orðið hluti af markmannsteymi félagsins; yrði þá varamarkvörður fyrir Anton Ara Einarsson.

Stefán Logi Magnússon gæti tekið við sem markmannsþjálfari hjá karlaliði Breiðabliks en hann hefur verið markmannsþjálfari kvennaliðsins og verður það áfram.

Reynsluboltarnir Kristinn Steindórsson, Kristinn Jónsson og Andri Rafn Yeoman eru að verða samningslausir hjá Blikum og orðið ljóst að Kiddi Steindórs fær ekki nýjan samning hjá Blikum.

Dagur Örn Fjeldsted er sömuleiðis með lausan samning hjá Blikum en hann er með tilboð á borðinu frá félaginu.

Fyrir leik
Velkomin til leiks!
Heilir og sælir lesendur góðir og verið velkomin í beina textalýsingu beint frá Kópavogsvelli þar sem Breiðablik tekur á móti Keflavík í 25. umferð Bestu deildarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.