Fotbolti.net
Fótbolti.net
Fótbolti.net
Evrópukeppni unglingaliða
Vilnius, Litáen
Zalgiris U19
Zalgiris U19
2 - 0
Þór U19
Þór U19
Samtals 6 - 3
Vakaris Berenta 43'1 - 0Daumantas Braškys 79'2 - 0
Dómari: Aaron O’Dowd (Írland)
Leik lokið!
Þórsarar eru úr leik
Heimamenn eru komnir áfram og munu mæta St. Patrick's Athletic frá Írlandi í næstu umferð. Takk fyrir samfylgdina.
Þór U19
93. mín
Gult spjald

Jósef Orri Axelsson

90. mín
4 mínútum bætt við
Uppbótartími í gangi.
88. mín
Daumantas Bazys með marktilraun.
Þór U19
87. mín
Gult spjald

Eiður Logi Stefánsson

Braut á Erik Tucinskij.
Zalgiris U19
86. mín
Gult spjald

Karolis Chrustaliov

Braut á Hafþóri Inga Ingasyni.
85. mín
Brynjolfur Bogason með tilraun en hittir ekki á markið.
Þór U19
84. mín
InnHafþór Ingi Ingason
ÚtSmári Signar Viðarsson
Þór U19
84. mín
InnEiður Logi Stefánsson
ÚtHákon Kári Jónsson
Zalgiris U19
83. mín
InnDaumantas Bazys
ÚtVakaris Berenta
81. mín
Hákon Kári Jónsson með marktilraun en Dominykas Cekavicius ver.
Zalgiris U19
79. mín
MARK! Heimamenn eru búnir að innsigla þetta

Daumantas Braškys

Eftir sláarskot dettur boltinn til Braskys sem klárar dæmið. Þeir eru að fara til Írlands. Þórsarar detta úr leik.
78. mín
13-6 í marktilraunum
Tölfræðin segir að forysta heimamanna sé fyllilega verðskulduð.
76. mín
Ugnius Klimavicius með marktilraun.
Zalgiris U19
74. mín
InnUgnius Klimavicius
ÚtDovydas Šumkauskas
Zalgiris U19
74. mín
InnKarolis Chrustaliov
ÚtDanielius Velicka
Þór U19
73. mín
InnBrynjolfur Bogason
ÚtStefán Björn Svavarsson
Þór U19
72. mín
InnNatan Dagur Fjalarsson
ÚtRúnar Daði Vatnsdal
Þór U19
67. mín
Gult spjald

Rúnar Daði Vatnsdal

63. mín
Erik Tucinskij. nýkominn inn sem varamaður, með marktilraun fyrir heimamenn.
Zalgiris U19
62. mín
InnDaumantas Braškys
ÚtSimas Grabauskas
Zalgiris U19
62. mín
InnErik Tucinskij
ÚtTomas Grigaliunas
Þór U19
54. mín
InnKristófer Kató Friðriksson
ÚtLárus Sólon Biering Ottósson
Fyrsta skiptingin í leiknum.
52. mín
Peter Ingi Helgason með tilraun en hittir ekki á markið.
51. mín
Stefán Björn Svavarsson með tilraun en hittir ekki á markið.
49. mín
Zalgiris nálægt því að bæta við
Tomas Grigaliunas með skot í stöng.
47. mín
Simas Grabauskas með marktilraun sem hittir ekki á rammann.
46. mín
Seinni hálfleikur er kominn í gang
Vonandi munu Þórsstrákarnir ná að snúa þessu við í seinni hálfleiknum.
45. mín
Hálfleikur
Tölfræði fyrri hálfleiks:
Marktilraunir: 6-4
Skot á mark: 2-2
Hornspyrnur: 4-3
Rangstöður: 1-1
45. mín
Peter Ingi Helgason flaggaður rangstæður.
Zalgiris U19
43. mín
Heimamenn taka tveggja marka forystu í einvíginu

Vakaris Berenta

Skora á markamínútunni miklu. Boltinn hrekkur til Berenta í markteignum, hann fer framhjá markverði Þórs og klárar af stuttu færi.
37. mín
Smári Signar Viðarsson með marktilraun en hittir ekki á rammann.
36. mín
Kipras Kazlauskas með marktilraun fyrir heimamenn en hittir ekki rammann.
30. mín
Peter Ingi Helgason með marktilraun fyrir Þór.
Þór U19
12. mín
Gult spjald

Lárus Sólon Biering Ottósson

Braut á Tomas Grigaliunas.
8. mín
Vakaris Berenta leikmaður Zalgiris með skot í tréverkið.
6. mín
Fyrsta marktilraun heimamanna. Danielius Velicka með tilraun sem hittir ekki á rammann.
5. mín
Þór á fyrstu marktilraun leiksins. Peter Ingi Helgason með skot. Þetta endar með því að Þór fær hornspyrnu.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!
Írski dómarinn Aaron O’Dowd hefur flautað til leiks í Vilnius. Þórsarar þurfa nauðsynlega á sigri að halda til að komast áfram. Það er rigningarsuddi og 8 gráðu hiti.
Fyrir leik
Byrjunarlið Þórs
1. Lucas Vieira Thomas (m)
4. Jósef Orri Axelsson
7. Hákon Kári Jónsson
8. Kjartan Ingi Friðriksson
9. Peter Ingi Helgason
10. Ólíver Sesar Bjarnason
18. Smári Signar Viðarsson
23. Kári Jónsson
24. Lárus Sólon Biering Ottósson
27. Stefán Björn Svavarsson
37. Rúnar Daði Vatnsdal
Fyrir leik
Úrslitaþjónusta
Leikurinn verður ekki sýndur í beinni sjónvarpsútsendingu en reglur UEFA heimila ekki útsendingar þegar verið er að spila í Meistaradeild Evrópu á sama tíma. Hér verður úrslitaþjónusta úr upplýsingum frá UEFA.
Fyrir leik
Sáum að við eigum miklu meira en séns í þessa gaura
Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

„Mér fannst við stýra þessum leik að mestu leyti, gefum þeim bara skítamörk. Það er bara hálfleikur, þetta er langt frá því að vera búið. Við erum í bullandi séns áfram. Við sáum alveg að við eigum miklu meira en séns í þessa gaura. Við förum út og vinnum þá," sagði Aðalgeir Axesson, þjálfari U19 liðs Þórs, eftir tapið gegn Zalgiris í fyrri leiknum.

„Þeir munu pottþétt fara í það sama, negla fram, tefja og bíða eftir að eitthvað gerist. Við ætlum að fara út, með kassann úti og stýra leiknum. Það eina sem við getum gert er að vera hugrakkir og láta vaða á þetta."

Fyrir leik
Óliver Sesar: Við förum þarna út og vinnum þetta
Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

„Þetta er svekkjandi, mér fannst við miklu betri í leiknum og með boltann allan tímann. Við gáfum þeim klaufaleg mörk," sagði Óliver Sesar Bjarnason sem var besti maður Þórs að mati Fótbolta.net í fyrri leiknum. Hann skoraði fyrsta mark leiksins.

„Nei (mér finnst úrslitin ekki gefa rétta mynd af leiknum), mér fannst við miklu betri. Þetta er bullandi séns í seinni leiknum, við förum þarna út og vinnum þetta."

Fyrir leik
Af heimasíðu Þórs:
25 manna hópur hélt utan á mánudag; 20 leikmenn og 5 manna starfslið.

Strákarnir æfðu á leikvangnum í gær og eru allir klárir í slaginn fyrir leikinn í dag sem hefst klukkan 19:00 á staðartíma en það er klukkan 16:00 á íslenskum tíma.

Mynd: Þór
Fyrir leik
Dómari: Aaron O’Dowd (Írland)
Aðstoðardómari 1: David Connolly, Írland
Aðstoðardómari 2: Thomas Joyce, Írland
Fjórði dómari: Dovydas Svegzda, Litáen
Fyrir leik
U19 lið Þórs í Litáen
Komið er að seinni leik Zalgiris og Þórs í Evrópukeppni unglingaliða en hann fer fram í Vilnius í Litáen. Zalgiris er með 4-3 forystu í einvíginu eftir sigur á Akureyri. Þór varð Íslandsmeistari í 2. flokki á síðasta tímabili og Zalgiris vann deildina í Litáen.

Sigurvegarinn úr einvígi Þórs og Zalgiris mætir St. Patrick's Athletic frá Írlandi í næstu umferð, 28. október og 4. nóvember, og það lið sem hefur betur þar leikur væntanlega við enska félagið Chelsea í umferðinni þar á eftir.
Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Fyrri leikurinn:
Þór U19 3 - 4 Zalgiris U19
0-1 Vakaris Berenta ('1 )
0-2 Dovydas Eidukaitis ('24 )
1-2 Ólíver Sesar Bjarnason ('26 )
1-3 Vakaris Berenta ('38 )
2-3 Stefán Björn Svavarsson ('74 )
3-3 Rúnar Daði Vatnsdal Sveinsson ('76 )
3-4 Vakaris Berenta ('77 )
Lestu um leikinn
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.