Fotbolti.net
Besta deildin
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Besta karla - Neðri hluti
Kaplakrikavöllur
FH
FH
0 - 0
Þór
Þór
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Fyrir leik
Þriðja liðið
Helgi Mikael Jónasson er með flautuna. Ragnar Þór Bender og Jovan Subic verða með flöggin. Jóhann Ingi Jónsson er með skiltið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Allt undir hjá Þór
Þór þarf sigur í dag til að tryggja sér sæti í deild þeirra bestu og senda erkifjendurna í KA niður í Lengjudeildina. Ef Þór nær ekki að sigra þurfa þeir að treysta á að Linti og félagar hans í ÍBV geri þeim greiða og vinni fyrir norðan.

Þór situr í 10. sæti með 27 stig og KA er í 11. sæti með 26 stig. Þessi botnbaráttuslagur er tæpur en Þór getur líklega ekki treyst á markatölu þar sem þeir eru með verstu markatöluna í sumar eða -31. En við höfum öll séð það ótrúlega, en ég trúi því nú ekki að Siggi ætli að tapa svona stórt í dag.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Fyrir leik
Heimaliðið FH
Eftir 26 leiki þá er FH í 9. sætinu með 30 stig, 7 sigrar, 9 jafntefli og 10 töp. FH getur ekki fallið né unnið forsetabikarinn, þessi leikur skiptir kannski engu máli en ég trúi því að heimamenn vilji enda tímabilið sterkt. Þetta er fyrsta tímabilið hjá þjálfaranum Jóa Kalla sem tók yfir liðið síðasta vetur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Kjartan Kári hefur átt frábært tímabil með FH og verið einn af lykilmönnum liðsins. Hann hefur skorað 8 mörk og lagt upp 11 til viðbótar. Má segja að hann sé afar mikilvægur fyrir heimamenn. Það voru sögur um það að Víkingur vildi fá hann í sumar en hann ákvað að vera áfram í Hafnafirðinum. Kjartan hefur spilað 3 leiki í neðri hlutanum og skorað 3 mörk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Kaplakriki heilsar
Heil og sæl kæru lesendur, verið velkomin á þessa lýsingu milli FH og Þór. Þetta er síðasta umferðin í Bestu Deild karla og eru allir leikirnir spilaðir á sama tíma. Fotbolti.net er á öllum leikjunum eins og alltaf.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.


Umferðin í dag
14:00 KR-Breiðablik
14:00 ÍA-Keflavík
14:00 Stjarnan-Valur
14:00 FH-Þór
14:00 KA-ÍBV
16:15 Víkingur R.-Fram
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.