Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25124 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR24.02.2025, 17:30

20 mest lesnu fréttir vikunnar - Djuric seldur og Gylfi keyptur

Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar. Það hafa verið annasamir dagar hjá Víkingum sem voru að keppa í Sambansdeildinni og á sama tíma að selja og kaupa leikmenn.

FRÉTTIR24.02.2025, 16:59

Þorleifur rifti við Debrecen (Staðfest)

Þorleifur Úlfarsson hefur rift samningi sínum við Debrecen í Ungverjalandi og er því laus allra mála. Þorleifur samdi við félagið fyrir um ári síðan en náði ekki að stimpla sig almennilega inn eftir komuna frá Houston Dynamo og kom einungis við sögu í þremur deildarleikjum. Þorleifur hefur glímt við meiðsli stóran hluta af veru sinni í Ungverjalandi og er vonandi að hann fari að ná sér af þeim.

FRÉTTIR23.02.2025, 23:30

Clement rekinn frá Rangers (Staðfest)

Rangers hefur ákveðið að reka Philippe Clement úr þjálfarasætinu eftir 16 mánuði við stjórnvölinn. Gengi félagsins hefur ekki verið nægilega gott heimafyrir þrátt fyrir flottan árangur í Evrópudeildinni.

FRÉTTIR23.02.2025, 10:30

Van Persie mættur aftur heim til Feyenoord (Staðfest)

Robin van Persie var í morgun tilkynntur sem nýr stjóri Feyenoord. Hann kemur til félagsins frá Heerenveen. Markavélin Van Persie er 41 árs Hollendingur sem hóf leikmannaferilinn hjá Feyenoord og lauk honum þar einnig. Eftir veruna hjá Feyeenoord á árunum 1999-2004 fór hann til Arsenal, svo til Manchester United og loks til Fenerbahce áður en hann sneri aftur til Hollands. Hans fyrstu þjálfarastörf voru hjá yngri flokkum Feyenoord og sem aðstoðarmaður Dick Advocaat í þjálfateymi Feyenoord. Hans fyrsta aðalþjálfarastarf var hjá Heerenveen en hann er nú kominn til Feyenoord og skrifar undir til 2027. Hann tekur við Dananum Brian Priske sem var látinn fara nýlega. Rene Hake, sem hefur verið í þjálfarateymi Erik ten Haag, aðstoðar Van Persie hjá Feyenoord. Feyenoord endaði í 2. sæti hollensku deildarinnar í fyrra undir stjórn Arne Slot. Liðið er í dag í 3. sæti ideildarinnar, ellefu stigum á eftir Ajax og níu stigum á eftir PSV. Framundan er barátta í deildinni og einvígi gegn Inter í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

FRÉTTIR20.02.2025, 17:30

Ásbjörn og Vigfús stýra Hvíta Riddaranum (Staðfest)

Hvíti Riddarinn tilkynnti í dag að nýtt teymi væri tekið við þjálfun liðsins. Ásbjörn Jónsson verður aðalþjálfari og Vigfús Geir Júlíusson verður honum til halds og trausts. Ásbjörn tekur við af Ásgeiri Frank Ásgeirssyni sem hélt í Fjölni í vetur og er þar aðstoðarþjálfari. Hvíti Riddarinn er í 3. deild, liðið endaði í 6. sæti deildarinnar í fyrra. Félagið er venslafélag Aftureldingar.

FRÉTTIR20.02.2025, 17:00

Tómas Orri í FH (Staðfest)

Tómas Orri Róbertsson er búinn að skrifa undir samning við FH og mun því spila í Hafnarfirði í sumar eftir að hafa alist upp í Kópavogi með Breiðabliki.

FRÉTTIR20.02.2025, 14:13

Atli Sigurjóns óvænt áfram hjá KR (Staðfest)

Atli Sigurjónsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við KR og er því samningsbundinn út tímabilið 2026. Fyrri samningur hans rann út eftir síðasta tímabil og hefur hann því verið samningslaus í þrjá mánuði. Atli er örvfættur kantmaður sem fæddur er árið 1991. Hann er uppalinn hjá Þór og hefur einnig leikið með KR og Breiðabliki á sínum ferli.

FRÉTTIR19.02.2025, 16:38

Arnór Sig til Malmö (Staðfest)

Arnór Sigurðsson var í dag tilkynntur sem nýr leikmaður sænsku meistaranna í Malmö. Hann kemur á frjálsri sölu eftir að samningi hans við Blackburn var rift á dögunum. Hann skrifar undir samning sem gildir út næstu þrjú tímabil og verður í treyju númer 8. Skagamaðurinn er 25 ára gamall og á að baki 34 landsleiki. Hann hefur verið talsvert frá síðasta hálfa árið, bæði vegna meiðsla og veikinda en er að snúa aftur á völlinn. Í 41 leik með Blackburn skoraði Arnór átta mörk og lagði upp fimm.

FRÉTTIR19.02.2025, 11:07

Gylfi sá dýrasti í sögunni - „Hefði viljað sjá pakkadíl frá Val"

Gylfi Þór Sigurðsson varð í gær dýrasti leikmaður sem íslenskt félag hefur keypt þegar Víkingur greiddi tæplega 20 milljónir króna til Vals fyrir hann. Fyrir var Óli Valur Ómarsson sá dýrasti en Breiðablik keypti hann frá sænska félaginu Sirius í vetur og Benedikt Warén var sá dýrasti ef horft er í félagaskipti milli íslenskra félaga, en hann var keyptur til Stjörnunnar frá Vestra í vetur. Gylfi er einnig sá Íslendingur sem erlent félag hefur greitt hæstu upphæðina fyrir en Everton greiddi 45 milljónir punda þegar félagið keypti hann frá Swansea sumarið 2017. Gylfi er 35 ára miðjumaður og atburðarás síðustu daga var á þá leið að Valur taldi best í stöðunni að samþykkja tilboð í hann. Gylfi skoraði 11 mörk í 19 deildarleikjum með Val á síðasta tímabili.

FRÉTTIR19.02.2025, 09:51

Aida Kardovic til FHL (Staðfest)

FHL heldur áfram að safna liði fyrir komandi átök í Bestu deildinni. FHL vann Lengjudeildina í fyrra og er mætt í deild þeirra bestu. Í morgun greindi félagið frá komu Aidu Karodvic til félagsins. Hún er þriðji leikmaðurinn sem liðið fær til sín í vetur. Aida er fjölhæfur miðjumaður sem getur líka spilað allar fremstu stöðurnar á vellinum. Aida spilaði í Creighton háskólanum við góðan orðstír auk þess sem hún á 6 leiki með U19 landsliði Serbíu. Við bjóðum Aidu velkomna í FHL hópinn.

FRÉTTIR19.02.2025, 06:00

María Lena í HK (Staðfest)

María Lena Ásgeirsdóttir snýr aftur til HK eftir tveggja ára fjarveru en hún lék síðast með Sindra í 2. deild í fyrra.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.