Mathias Rosenörn í FH (Staðfest)
Danski markvörðurinn Mathias Rosenörn er genginn í raðir FH eftir að hafa verið á mála hjá Stjörnunni á síðasta tímabili. Hann gerir tveggja ára samning við Fimleikafélagið.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25126 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Danski markvörðurinn Mathias Rosenörn er genginn í raðir FH eftir að hafa verið á mála hjá Stjörnunni á síðasta tímabili. Hann gerir tveggja ára samning við Fimleikafélagið.
Katherine Amanda Cousins, eða Katie Cousins eins og hún er langoftast kölluð, hefur skrifað undir tveggja ára samning við Þrótt. Hún er að snúa aftur eftir eins árs veru hjá Val en þetta er í þriðja sinn sem Katie spilar með Þrótti. Hún kom fyrst fyrir tímabilið 2021 og var í eitt tímabil. Hún mætti svo aftur fyrir tímabilið 2023 og var aftur í eitt tímabil. Öll þrjú tímabilin á Íslandi hefur Katie verið einn allra besti leikmaður Bestu deildarinnar. Í öll þrjú skiptin var Katie valin í lið ársins hér á Fótbolti.net.
FH tilkynnti í dag að Katla María Þórðardóttir væri gengin í raðir f?lagsins. Hún skrifar undir tveggja ára samning við Fimleikafélagið. Katla María er 23 ára og kemur til FH eftir ár með Örebro í Svíþjóð. Hún getur bæði spilað á miðju og í vörninni. Hún hefur spilað með Keflavík, Fylki, Selfossi og Örebro á sínum ferli.
Þorsteinn Aron Antonsson er genginn í raðir HK en félagið hefur náð samkomulagi við Val um kaup á varnarmanninum. Önnur félög höfðu augastað á honum en HK varð lendingin. Þorsteinn Aron er 21 árs miðvörður sem gekk í raðir Vals fyrir rúmu ári síðan og lék á láni hjá HK á síðasta tímabili. Selfyssingurinn gerir þriggja ára samning við HK. Á síðasta tímabili kom hann við sögu í 25 leikjum og skoraði þrjú mörk, voru öll þeirra sigurmörk gegn Fram.
<i>„Velkominn aftur, Willian,"</i> skrifar Fulham á samfélagsmiðla sína þar sem félagið staðfestir endurkomu Brasilíumannsins Willian til félagsins. Willian, sem er 36 ára, var án félags eftir að hafa rift samningi sínum við gríska félagið Olympiakos. Hann skrifar undir samning við Fulham út þetta tímabilið. Willian var með Fulham 2022–2024 þar sem hann gerði 10 mörk og gaf 7 stoðsendingar í 67 leikjum. Willian hefur átt frábæran feril og telur Fulham að hann eigi enn eitthvað eftir á tankinum. Brasilíumaðurinn spilaði áður með Arsenal og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni og þá lék hann einnig með Corinthians, Anzhi og Shakhtar Donetsk.
Fjölnir er búinn að krækja í efnilegan leikmann fyrir kvennadeild félagsins.
Fram hefur tekist að krækja í nýjan leikmann fyrir meistaraflokk kvenna sem spilar með liðinu í Bestu deildinni næsta sumar.
Tyrkneska stórveldið Galatasaray er búið að festa kaup á miðjumanninum Mario Lemina sem var að renna út á samningi hjá Wolves.
Anton Fannar Kjartansson er genginn í raðir Leiknis en hann kemur til félagsins frá Ægi. Anton Fannar er tvítugur varnarmaður sem skrifar undir tveggja ára samning við Leikni. Hann er uppalinn hjá Breiðabliki og hóf meistaraflokksferilinn sinn með Ægi sumarið 2023. Á síðasta tímabili lék hann 22 leiki í 2. deild og skoraði tvö mörk. Anton Fannar er þriðji leikmaðurinn sem Leiknir krækir í þennan veturinn. Liðið endaði í 8. sæti Lengjudeildarinnar í fyrra og þjálfari liðsins er Óli Hrannar Kristjánsson.
ÍR-ingar hafa fengið öflugan liðsstyrk fyrir komandi átök í Lengjudeildinni því þeir hafa fengið uppalinn leikmann aftur í sínar raðir. Hann er sóknarsinnaður miðjumaður sem getur einnig leyst stöðu kantmanns og framherja. Hákon Dagur Matthíasson er mættur aftur frá Víkingi en hann skipti frá ÍR fyrir tímabilið 2022. Fyrstu tvö tímabilin lék hann með 2. flokki Víkings en á síðasta tímabili kom hann á láni til ÍR. Hákon Dagur er fæddur árið 2005 og á að baki fjóra leiki fyrir U17 landsliðið. Á síðasta tímabili 20 leikjum með ÍR og skoraði tvö mörk. Hann skrifar undir samning við ÍR sem gildir út 2027.
Danski miðjumaðurinn Marc Rochester Sörensen er genginn í raðir HB Köge í Danmörku eftir tvö tímabil hjá Þór á Akureyri. Hann er 32 ára og skrifar undir eins og hálfs árs samning við félagið sem er í botnbaráttu dönsku B-deildarinnar.
Kristófer Orri Pétursson er genginn í raðir KR frá Gróttu og skrifar undir eins árs samning í Vesturbænum. Kristófer (1998) er sóknarmaður sem uppalinn er hjá Gróttu og hefur spilað allan sinn feril með uppeldisfélaginu, alls 200 leiki og þar af voru 18 í efstu deild tímabilið 2020. Hann var fyrirliði Gróttu á síðasta tímabili. KR hefur verið með þrjá framherja í sínum leikmannahópi í vetur en það eru þeir Eiður Gauti Sæbjörnsson, Jakob Gunnar Sigurðsson og Óðinn Bjarkason. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er mjög líklegt að þeir Óðinn og Jakob verði lánaðir frá félaginu. Kristófer þekkir vel til þjálfara KR, Óskars Hrafns Þorvaldssonar, eftir að hafa leikið undir hans stjórn tímabilin 2018-19.
Kristófer Snær Jóhannsson hefur fengið félagaskipti í Víði eftir að hafa verið á mála hjá norska stórliðinu Molde í eitt og hálft ár. Kritófer fór til Molde haustið 2023 en er nú mættur aftur heim á Suðurnesin. Hann spilaði 20 leiki með varaliði Molde í fyrra og skoraði tvö mörk. Hann er miðjumaður/kantmaður sem fæddur er árið 2006 og kom við sögu í fimm keppnisleikjum tímabilið 2023. Hann er uppalinn hjá Keflavík en skipti yfir í Njarðvík fyrir tímabilið 2023.
Danski framherjinn Jannik Pohl hefur fengið félagaskipti frá Fram til Þýskalands þar sem hann er genginn í raðir 1. FC Phönix Lübeck. Liðið er í fjórðu efstu deild sem er svæðisskipt, liðið er í Regionalliga Nord. Jannik Pohl var í þrjú tímabil hjá Fram en var talsvert frá vegna meiðsla, sérstaklega síðustu tvö tímabil. Hann spilaði 19 leiki tímabili 2022, átta leiki 2023 og fjóra leiki á síðasta tímabili. Hann skoraði átta mörk 2022, tvö mörk 2023 en komst ekki á blað í deildinni í fyrra.
Hollenska félagið tilkynnti í kvöld komu hollenska bakvarðarins Tyrell Malacia frá Manchester United, en hann kemur á láni út tímabilið.
Tottenham hefur gengið frá kaupum á írska framherjanum Mason Melia frá St. Patrick's Athletic, en hann mun formlega ganga í raðir félagsins á næsta ári.
Vængmaðurinn Adam Ægir Pálsson hefur fundið sér nýtt félag á Ítalíu en hann er kominn til ítalska C-deildarliðsins Novara á láni frá Val út tímabilið.
Enska B-deildarliðið WBA sótti enska framherjann Adam Armstrong á láni frá Southampton fyrir gluggalok.
Kanadíski vinstri bakvörðurinn Alphonso Davies framlengdi í dag samning sinn við Bayern München til ársins 2030. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bayern í dag.
Chelsea hefur staðfest komu Mathias Amougou frá franska félaginu St. Etienne en hann kemur fyrir 12 milljónir punda.