FRÉTTIR04.02.2025, 16:13
Heiðdís Lillýardóttir er gengin í raðir Breiðabliks á nýjan leik eftir að hafa verið í atvinnumennsku.
Heiðdís spilaði með Breiðablik frá 2017 til ársins 2022 og varð bæði Íslands-og bikarmeistari og með liðinu á þeim tíma.
FRÉTTIR04.02.2025, 14:18
Portúgalinn Joao Felix er kominn á lánssamningi frá Chelsea til AC Milan. Ekki er nein klásúla um framtíðarkaup en Milan borgar laun leikmannsins út tímabilið.
Þetta eru fjórðu félagaskipti Felix á aðeins þremur árum en hann hefur ekki náð að festa niður rótum. Hann byrjaði tímabilið 2022-23 hjá Atletico Madrid en var lánaður til Chelsea um mitt tímabil.
Hann tók svo tímabil hjá Barcelona og nú eftir að hafa verið sex mánuði hjá Chelsea er hann genginn í raðir AC Milan.
FRÉTTIR04.02.2025, 14:00
Markvörðurinn Chante Sandiford hefur tekið hanskana af hillunni og gert eins árs samning við knattspyrnudeild Selfoss.
Chante er Selfyssingum kunnug en hún varði mark liðsins í þrjú tímabil árin 2015-2017 og er Selfoss hennar fyrsta félag á Íslandi. Hún var á tíma fyrirliði liðsins.
Þaðan gekk hún til liðs við Avaldnses í Noregi og hefur síðan þá leikið með Haukum og Stjörnunni á Íslandi. Eftir tímabilið 2022 gerðist Chante aðstoðarþjálfari kvennaliðs Grindavíkur.
FRÉTTIR04.02.2025, 13:30
Sunderland hefur staðfest að Jayden Danns sé kominn til félagsins á láni frá Liverpool.
Félagaskiptaglugginn lokaði í gærkvöldi en Sunderland sendi alla pappíra inn áður en glugginn lokaði. Félagið var svo að opinbera skiptin núna.
FRÉTTIR04.02.2025, 12:54
Katie Cousins, sem hefur verið ein besta fótboltakonan á Íslandi síðustu árin, mun ekki leika áfram með Val. Félagið reyndi að endursemja við hana en það tókst ekki.
Fótbolti.net hefur fengið þetta staðfest en Orri Rafn Sigurðarson sagði fyrst frá á samfélagsmiðlinum <i>X</I>.
FRÉTTIR04.02.2025, 11:00
Núna er janúarglugginn á enda og leikmannahópar staðfestir til loka tímabils hjá félögunum í ensku úrvalsdeildinni. Það gerðist ýmislegt í janúar en hér fyrir neðan má sjá allt það sem félögin í uppáhalds deild margra Íslendinga gerðu.
Með því að <a href="https://fotbolti.net/leita?search=%28Sta%C3%B0fest%29&searchType=1" target="_blank">smella hér</a> má sjá öll (Staðfest) félagaskiptin sem máli skipta.
BESTA DEILD KARLA04.02.2025, 08:30
Gluggadagurinn er að baki en með því að <a href="https://fotbolti.net/leita?search=%28Sta%C3%B0fest%29&searchType=1" target="_blank">smella hér</a> má sjá öll (Staðfest) félagaskiptin sem máli skipta. - En hér er slúðurpakkinn á þriðjudegi.
FRÉTTIR04.02.2025, 08:00
Skoska meistaraliðið Celtic náði að krækja í Ganamanninn Jeffrey Schlupp á láni frá Crystal Palace fyrir lok félagaskiptagluggans í gær.
FRÉTTIR04.02.2025, 07:30
Ítalska félagið Roma festi kaup á tveimur leikmönnum undir lok gluggans í gær en franski miðjumaðurinn Lucas Gourna-Douath og danski varnarmaðurinn Victor Nelsson komu til félagsins frá Salzburg og Galatasaray.
FRÉTTIR04.02.2025, 07:00
Fiorentina hefur gengið frá samningum við Juventus um ítalska miðjumanninn Nicolo Fagioli en hann kemur á láni út tímabilið gegn kaupskyldu eftir tímabilið.
FRÉTTIR04.02.2025, 06:00
Simbabve-maðurinn Marshall Munesti er formlega genginn í raðir Wolves frá Reims í Frakklandi, en enska félagið kynnti hann seint í gærkvöldi.
FRÉTTIR04.02.2025, 06:00
Víkingur R. hefur styrkt sig fyrir komandi átök í Bestu deildinni en Ísfold Marý Sigtryggsdóttir er komin til félagsins frá Þór/KA.
FRÉTTIR04.02.2025, 01:16
Franski miðvörðurinn Axel Disasi hefur samið við Aston Villa út tímabilið en hann kemur á láni frá Chelsea. Skiptin voru tilkynnt seint í kvöld.
FRÉTTIR04.02.2025, 01:00
Nottingham Forest fékk tvo nýja leikmenn til félagsins fyrir gluggalok en þeir Tyler Bindon og Joel Ndala eru komnir til félagsins og þá voru þeir Lewis O'Brien og Emmanuel Dennis sendir á lán í B-deildina.
FRÉTTIR04.02.2025, 00:24
Argentínski miðjumaðurinn Carlos Alcaraz er kominn til Everton á láni frá Flamengo út tímabilið.
FRÉTTIR04.02.2025, 00:19
Félagaskiptaglugginn lokaði klukkan 23 en tilkynningarnar halda áfram að hrannast inn þar sem félög gátu fengið aukinn tíma til að ganga frá pappírsvinnu. Wolves tókst meðal annars að landa miðverðinum Nasser Djiga frá Rauðu stjörnunni í Serbíu.
FRÉTTIR03.02.2025, 23:35
Crystal Palace tókst að ganga frá lánssamningi við Chelsea um Ben Chilwell áður en glugginn lokaði klukkan 23:00 í kvöld.
FRÉTTIR03.02.2025, 23:21
Tottenham hefur loks tilkynnt komu franska framherjans Mathys Tel frá Bayern München í Þýskalandi. Hann kemur á láni út tímabilið og er kaupákvæði í samningnum.
FRÉTTIR03.02.2025, 23:14
Englandsmeistarar Manchester City hafa landað spænska miðjumanninum Nico Gonzalez frá portúgalska félaginu Porto fyrir 50 milljónir punda.
FRÉTTIR03.02.2025, 22:56
Enska úrvalsdeildarfélagið Bournemouth hefur staðfest kaupin á franska sóknarmanninum El Junior Kroupi en hann kemur frá B-deildarliði Lorient.