Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25128 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR30.01.2025, 15:51

Óskar Örn farinn frá Víkingi (Staðfest)

Óskar Örn Hauksson er farinn frá Víkingi eftir árs veru hjá félaginu. Hann var fyrst ráðinn til félagsins sem styrktarþjálfri en meðfram því kom hann við sögu í níu deildarleikjum og einum bikarleik á síðasta tímabili. Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi, staðfesti tíðindi í samtali við Fótbolta.net í dag. Óskar Örn varð fertugur í ágúst og er leikjahæsti leikmaður í sögu efstu deildar á Íslandi. Hann hefur skorað 88 mörk í 382 leikjum í efstu deild. Hann varð leikjahæsti leikmaður í deidlarkeppni á Íslandi um tveimur vikum áður en fagnaði fertugasta afmælisdeginum síðasta sumar þegar hann lék sinn 440. deildarleik á ferlinum.

FRÉTTIR30.01.2025, 12:04

Gerrard ekki lengur stjóri Al-Ettifaq (Staðfest)

Steven Gerrard er hættur sem stjóri Al-Ettifaq í Sádi-Arabíu. Félagið hefur staðfest þetta og segir um sameiginlega ákvörðun að ræða. Gerrard var átján mánuði við stjórnvölinn en hann tók við í júlí 2023. Gengi Al-Ettifaq undir stjórn Gerrard hefur ekki verið eftir væntingum og liðið aðeins unnið fimm af sautján leikjum sínum á þessu tímabili. Það er fimm stigum fyrir ofan fallsæt.

FRÉTTIR30.01.2025, 09:43

Kovac tekur við Dortmund eftir helgi (Staðfest) - Gerir nokkuð stuttan samning

Niko Kovac var í morgun tilkynntur sem nýr stjóri þýska félagsins Dortmund sem hefur verið í stjóraleit frá því að Nuri Sahin var rekinn fyrir um viku síðan. Kovac skrifar undir eins og hálfs árs samning, gildir út næsta tímabil. Hann tekur formlega við af bráðabirgðastóranum Mike Tullberg eftir leik Dortmund gegn Heidenheim á sunnudag.

FRÉTTIR29.01.2025, 19:30

Danilo til Flamengo (Staðfest)

Brasilíski varnarmaðurinn Danilo er kominn aftur til heimalandsins og hefur nú verið formlega staðfestur sem nýr leikmaður Flamengo.

FRÉTTIR29.01.2025, 18:29

Emi Buendía til Bayer Leverkusen (Staðfest)

Þýskalandsmeistarar Bayer Leverkusen tilkynntu í dag komu argentínska leikmannsins Emi Buendía frá Aston Villa en hann kemur á láni út tímabilið.

FRÉTTIR29.01.2025, 14:00

Elaina LaMacchia aftur í Fram (Staðfest)

Markvörðurinn Elaina LaMacchia er gengin í raðir Fram á nýjan leik eftir að hafa spilað með Aftureldingu síðasta sumar. Hún lék með Fram sumarið 2023 og lék þá afar vel. <i>&bdquo;Við Framarar þekkjum Elainu vel, þar sem hún spilaði með liðinu í Lengjudeildinni tímabilið 2023. Hún stóð sig frábærlega það sumar en valdi svo að fara til Aftureldingar síðasta sumar, þar sem hún var valin í lið ársins í Lengjudeildinni þrátt fyrir að hafa aðeins spilað hálft tímabilið áður en hún meiddist,"</I> segir í tilkynningu Fram.

FRÉTTIR29.01.2025, 11:30

Stóð sig vel á Króknum og samdi í Svíþjóð (Staðfest)

Bandaríski markmaðurinn Monica Elizabeth Wilhelm er búin að semja við sænska félagið Eskilstuna. Monica hefur spilað með Tindastóli síðustu tvö ár í Bestu deildinni og staðið sig vel. Hún var einu sinni leikmaður umferðarinnar og fjórum sinnum í liði umferðarinnar tímabilið 2023 og einu sinni í liði umferðarinnar á síðasta tímabili. Monica verður 25 ára í febrúar en hún kom á Sauðárkrók eftir að hafa spilað með háskólaliði í Iowa þar á undan.

FRÉTTIR29.01.2025, 06:00

Pablo Marí orðinn liðsfélagi Alberts (Staðfest)

Spænski varnarmaðurinn Pablo Mari er genginn til liðs við Fiorentina frá Roma. Fiorentina borgaði um 2 milljónir evra fyrir þennan 31 árs gamla miðvörð. Hann skrifaði undir eins og hálfs árs samning.

FRÉTTIR28.01.2025, 18:37

Árni Guðna fer yfir málin - „Hef fulla trú á að hann nái að nýta meðbyrinn úr tónlistinni"

Fylkir féll úr Bestu deildinni síðasta haust og í Árbænum er stefnan sett á að fara upp úr Lengjudeildinni í sumar. Árni Freyr Guðnason var ráðinn þjálfari liðsins í haust, hann tók við af Rúnari Páli Sigmundssyni. Það hafa ekki orðið miklar breytingar á leikmannahópnum, tveir nýir leikmenn eru komnir inn og fjórir hafa haldið annað. Þeir Eyþór Aron Wöhler og Bjarki Steinsen Arnarsson komu en þeir Þórður Gunnar Hafþórsson (Afturelding), Ómar Björn Stefánsson (ÍA), Guðmundur Rafn Ingason (Stjarnan) og Matthias Præst (KR) héldu annað. Fylkir endaði í 3. sæti B-riðils í Reykjavíkurmótinu, liðið sigraði Fram en tapaði gegn Þrótti og Val. Fótbolti.net ræddi við Árna þjálfara í dag.

FRÉTTIR28.01.2025, 15:30

Jonas Urbig í Bayern (Staðfest)

Bayern München hefur staðfest að markvörðurinn Jonas Urbig sé genginn í raðir félagsins frá Köln. Urbig er 21 árs gamall og hefur verið aðalmarkvörður Köln á þessari leiktíð. Hann þykir einn mest spennandi markvörður Þýskalands.

FRÉTTIR28.01.2025, 14:14

Frá KA til Austurríkis og Svartfjallalands (Staðfest)

Tveir leikmenn sem voru hjá KA á síðasta tímabili eru búnir að semja við félög erlendis. Það eru þeir Darko Bulatovic og Kristijan Jajalo. Darko sneri aftur í KA um mitt sumar í fyrra eftir að hafa áður leikið með liðinu tímabilið 2017. Darko kom inn í stað Birgis Baldvinssonar sem hélt til Bandaríkjanna til að ljúka háskólanámi. Svartfellingurinn reynslumikli spilaði tíu deildarleiki og bikarúrslitaleikinn þar sem KA lagði Víking. Hann er 35 ára, örvfættur varnarmaður og samdi við Arsenal Tivat sem er í úrvalsdeildin í Svartfjallalandi. Deildin þar er í vetrarfríi en fer aftur af stað eftir rúmar þrjár vikur.

FRÉTTIR27.01.2025, 17:00

Jota aftur til Celtic og Kyogo farinn í Rennes (Staðfest)

Celtic hefur endurheimt Jota en hann yfirgaf félagið 2025. Honum tókst ekki að festa sig í sessi hjá Al-Ittihad í Sádi-Arabíu og ekki heldur hjá Rennes í Frakklandi. Þessi 25 ára portúgalski vængmaður er í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Celtic og hefur skrifað undir fimm og hálfs árs samning við Skotlandsmeistarana.

FRÉTTIR27.01.2025, 16:30

Christian McFarlane í Man City (Staðfest)

Englandsmeistarar Manchester City hafa fest kaup á bandaríska varnarmanninum Christian McFarlane. Hann kemur til Man City frá systurfélaginu New York City FC.

FRÉTTIR27.01.2025, 13:00

Danilo riftir samningi við Juventus (Staðfest)

Brasilíski varnarmaðurinn Danilo hefur rift samingi sínum við Juventus en félagið staðfestir þetta í dag. Hann var um tíma fyrirliði Juventus. Danilo spilaði 213 leiki fyrir Juventus á fimm og hálfu ári, og skoraði hann níu mörk. Hann vann ítölsku úrvalsdeildina einu sinni, ítalska ofurbikarinn einu sinni og ítölsku bikarkeppnina tvisvar.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.