FRÉTTIR23.12.2024, 10:00
KFA hefur tilkynnt um áframhaldandi samstarf við Eggert Gunnþór Jónsson en hann tók við sem þjálfari liðsins í sumar. Hann gerir nú tveggja ára samnijng við félagið.
Hann mun áfram vera spilandi þjálfari liðsins. Eggert Gunnþór er 36 ára miðjumaður, fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður sem uppalinn er hjá Fjarðabyggð og gekk í raðir KFA síðasta vetur. Hann var orðaður við aðstoðarþjálfarastarfið hjá Fylki í vetur en heldur tryggð við KFA.
Eggerti til aðstoðar verður Hlynur Bjarnason en hann skrifaði einnig undir tveggja ára samning.
FRÉTTIR22.12.2024, 21:28
U21 landsliðsmaðurinn Logi Hrafn Róbertsson er búinn að skrifa undir þriggja og hálfs árs samning við króatíska félagið NK Istra, sem leikur í efstu deild í heimalandinu.
FRÉTTIR22.12.2024, 08:00
Viktoría Fjóla Sigurjónsdóttir er búin að gera tveggja ára samning við Fjölni sem leikur í 2. deild kvenna.
FRÉTTIR22.12.2024, 07:30
Fram er búið að klófesta efnilegan bakvörð sem kemur til félagsins úr röðum Fjölnis.
FRÉTTIR22.12.2024, 06:00
Ellefu leikmenn meistaraflokks kvenna hjá Gróttu hafa framlengt samninga sína við félagið.
FRÉTTIR21.12.2024, 17:57
Króatinn Ivan Juric er orðinn stjóri Southampton en hann tekur við af Russell Martin sem var rekinn á dögunum.
FRÉTTIR21.12.2024, 10:48
Guðmunda Brynja Óladóttir er komin aftur heim í Selfoss eftir átta ára fjarveru en hún gerir eins árs samning við uppeldisfélagið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
FRÉTTIR21.12.2024, 08:00
Anja Ísis Brown er gengin til liðs við HK en hún kemur frá ÍR.
Hún er fædd árið 2002 og er uppalin hjá Gróttu. Þar hóf hún meistaraflokksferil sinn árið 2018 þar sem hún kom við sögu í 13 leikjum, 11 í Lengjudeildinni og tveimur í Mjókurbikarnum.
FRÉTTIR21.12.2024, 06:00
Lovísa Guðrún Einarsdóttir er gengin til liðs við Selfoss en hún kemur frá ÍR.
Lovísa er fædd árið 2000 en hún hefur verið fyrirliði ÍR undanfarin ár.
FRÉTTIR20.12.2024, 13:16
ÍR tilkynnti í dag að Jónþór Atli Ingólfsson væri genginn í raðir félagsins og skrifar hann undir tveggja ára samning.
Hann kemur til ÍR frá Augnabliki þar sem hann hefur spilað síðustu tvö tímabil en hann er uppalinn hjá Breiðabliki.
Hann er 19 ára og er að upplagi hægri bakvörður. Hann er fyrsti leikmaðurinn sem ÍR sækir eftir að síðasta tímabili lauk.
FRÉTTIR20.12.2024, 12:50
Kormákur/Hvöt tilkynnti í vikunni, í gegnum aðdáendasíðu Kormáks, að Dominic Louis Furness væri tekinn við sem þjálfari liðsins. Hann tekur við af Aco Pandurevic.
Englendingurinn Dominic hefur þjálfað lið Tindastóls undanfarin ár og stýrði liðinu upp úr 4. deildinni síðasta sumar. Sem leikmaður lék hann víða, t.d. með Tindastóli og FH hér á landi.
FRÉTTIR20.12.2024, 10:46
Brynjar Óðinn Atlason er genginn í raðir ÍA en hann kemur til félagsins frá Hamri. Brynjar Óðinn er 15 ára en hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið 28 leiki fyrir meistaraflokk Hamars og skorað í þeim tvö mörk.
<i>„Brynjar Óðinn er öflugur hægri bakvörður með mikla hlaupagetu og góðar fyrirgjafir. Hann er góður varnarlega og gefur mikið af sér á vellinum."
„Brynjar hefur verið í æfingahópum U-16 ára landsliðs Íslands undanfarna mánuði og var sömuleiðis valinn í þann hóp fyrir komandi verkefni í janúar,"</i> segir í tilkynningu ÍA.
FRÉTTIR19.12.2024, 18:26
Viðar Ari Jónsson er búinn að framlengja samning sinn við HamKam sem leikur í efstu deild norska boltans.
FRÉTTIR19.12.2024, 14:49
Úlfarnir hafa staðfest ráðningu á Vitor Pereira en hann hefur gert átján mánaða samning og tekur við sem stjóri af Gary O’Neil sem var rekinn á sunnudag.
Portúgalinn Pereira kemur frá Al-Shabab í Sádi-Arabíu en á ferilskrá hans eru landstitlar í Grikklandi, Portúgal og Kína.
Wolves er í næst neðsta sæti í ensku úrvalsdeildinni og hefur tapað fjórum síðustu leikjum. Fyrsti leikur liðsins með Pereira við stjórnartaumana verður gegn Leicester á sunnudag, liði sem er tveimur sætum og fimm stigum fyrir ofan.
FRÉTTIR18.12.2024, 21:21
Kamerúnski sóknarmaðurinn Eric Maxim Choupo-Moting hefur fundið sér nýtt félag eftir að hafa yfirgefið Bayern München í sumar, en hann er genginn í raðir New York Red Bulls í Bandaríkjunum.
FRÉTTIR18.12.2024, 18:03
Valur hefur krækt í miðjumanninn Tómas Bent Magnússon en hann kemur til félagsins frá ÍBV.
FRÉTTIR18.12.2024, 09:00
Son Heung-min hefur verið mikilvægur hlekkur í sterku liði Tottenham undanfarinn áratug og er spenntur fyrir komu samlanda síns Yang Min-hyeok til félagsins.
FRÉTTIR17.12.2024, 21:30
Enski þjálfarinn Steve Holland er kominn með nýtt starf eftir að hafa verið aðstoðarlandsliðsþjálfari Englands undir stjórn Gareth Southgate.
FRÉTTIR17.12.2024, 20:00
Tottenham er búið að kaupa ungan kantmann frá Suður-Kóreu sem gæti orðið arftaki Son Heung-min hjá félaginu.
FRÉTTIR17.12.2024, 19:28
Leiknir R. var að styrkja leikmannahópinn sinn með klókum kantmanni sem kemur úr röðum Fjölnis.