Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25134 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR17.12.2024, 18:34

Freyr látinn fara frá Kortrijk (Staðfest)

Freyr Alexandersson er ekki lengur þjálfari Kortrijk. Frá þessu greinir belgíska félagið rétt í þessu. Í tilkynningu félagsins er sagt frá því að ákveðið hefði verið að leiðir myndu skilja. Félagið þakkar Frey fyrir sitt starf og að hafa náð að halda liðinu uppi á síðasta tímabili eftir frábæran endasprett. Aðstoðarmaður Freys, Jonathan Hartmann, yfirgefur einnig Kortrijk.

FRÉTTIR17.12.2024, 16:15

Jana Sól heim í Stjörnuna (Staðfest)

Jana Sól Valdimarsdóttir er gengin í raðir Stjörnunnar á nýjan leik eftir fjögurra ára fjarveru. Jana, sem er fædd árið 2003, er uppalin hjá Stjörnunni en gekk í raðir Vals fyrir tímabilið 2021. Hún lék svo með HK á síðasta tímabili. Hún lék á sínum tíma níu leiki fyrir unglingalandsliðin og skoraði þrjú mörk. Á síðasta tímabili skoraði hún fimm mörk í 13 leikjum með HK í Lenjgudeildinni.

FRÉTTIR17.12.2024, 15:57

Guðmundur Páll heim í Vestra (Staðfest)

Vestri tilkynnti í dag að Guðmundur Páll Einarsson væri mættur aftur til félagsins eftir eins árs veru í Garðabæ þar sem hann lék með KFG og 2. flokki Stjörnunnar. Guðmundur er bakvörður sem fæddur er árið 2005 og skrifar undir þriggja ára samning við Vestra.

FRÉTTIR17.12.2024, 12:30

Kovtun verður ekki áfram hjá Keflavík (Staðfest)

Úkraínski varnarmaðurinn Oleksii Kovtun verður ekki áfram hjá Keflavík en samningur hans við félagið rennur út um áramótin. Hann er að leita sér að nýju félagi. Kovtun gekk í raðir Keflavíkur fyrir tímabilið 2023 og spilaði 20 leiki í Bestu deildinni í fyrra og 18 leiki af 25 með Keflavík í Lengjudeildinni í sumar. Hann byrjaði alla þrjá leiki í umspilinu þar sem Keflavík tapaði í úrslitum gegn Aftureldingu.

FRÉTTIR16.12.2024, 14:54

Arnleifur á láni til Njarðvíkur (Staðfest)

Arnlefiur Hjörleifsson er genginn í raðir Njarðvíkur, hann mun leika með liðinu á láni tímabilið 2025 frá ÍA. Vinstri bakvörðurinn er frá Ólafsvík og hefur leikið með Skallagrími, Kára, Kórdrengjum og ÍA á sínum ferli. Hann kom við sögu í 12 leikjum í Bestu deildinni í sumar og tímabilið 2023 lék hann 20 leiki í Lengjudeildinni.

FRÉTTIR16.12.2024, 13:36

Unnur Dóra í Þrótt (Staðfest)

Unnur Dóra Bergsdóttir er gengin í raðir Þróttar og gerir hún þriggja ára samning við félagið. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net var talsverður áhugi á leikmanninum en hún endaði á að semja við Þrótt. Unnur Dóra hefur verið í lykilhlutverki á Selfossi síðustu ár og var fyrirliði uppeldisfélagsins. Hún er fædd árið 2000 og á að baki þrjá leiki með íslensku landsliðunum, einn þeirra er skráður A-landsleikur og tveir með U23 landsliðinu. Alls á hún að baki 163 KSÍ leiki og í þeim hefur hún skorað 18 mörk.

FRÉTTIR15.12.2024, 13:02

Gary O'Neil rekinn frá Wolves (Staðfest)

Úlfarnir hafa formlega staðfest brottrekstur enska stjórans Gary O'Neil tæpum sólarhring eftir 2-1 tap liðsins gegn nýliðum Ipswich Town.

FRÉTTIR14.12.2024, 20:00

Juan Guardia í Þór (Staðfest)

Lengjudeildarlið Þórs á Akureyri tilkynnti í gær að spænski varnarmaðurinn Juan Guardia Hermida sé genginn í raðir félagsins frá nágrönnunum í Völsungi.

FRÉTTIR13.12.2024, 14:00

Orri Sveinn heldur tryggð við uppeldisfélagið (Staðfest)

Fylkir tilkynnti í dag að Orri Sveinn Segatta væri búinn að skrifa undir nýjan tveggja ára samning við félagið. Síðustu vikur hefur framtíð Orra verið í óvissu og var hann í síðasta mánuði orðaður í burtu frá félaginu. Hann hefur ákveðið að taka slaginn áfram með uppeldisfélaginu.

FRÉTTIR13.12.2024, 13:38

ÍBV kaupir Bjarka Björn (Staðfest)

ÍBV og Víkingur greindu í dag frá því að Bjarki Björn Gunnarsson væri alfarið genginn í raðir ÍBV frá Víkingi en Bjarki lék á láni í Vestmannaeyjum í sumar sem og tímabilið 2023. Hann skrifar undir þriggja ára samning við ÍBV. <i>&bdquo;Hann lék 14 leiki fyrir ÍBV í deildinni á árinu og skoraði í þeim 5 mörk en tvö þeirra voru meðal fallegustu marka deildarinnar,"</I> segir í tilkynningu ÍBV. ÍBV vann Lengjudeildina í sumar og verður því í Bestu deildinni á komandi tímabili. Bjarki er uppalinn hjá Víkingi og lék fjóra meistaraflokksleiki fyrir félagið. Hann hefur undanfarin fimm tímabil verið á láni frá félaginu, fyrst hjá Haukum, svo Þrótti Vogum, næst Kórdrengjum og loks hjá ÍBV í tvö tímabil.

FRÉTTIR13.12.2024, 13:00

Mist Funadóttir heim í Þrótt (Staðfest)

Mist Funadóttir er búin að skrifa undir þriggja ára samning við uppeldisfélagið sitt, Þrótt, en hún er snúin aftur til félagsins eftir tvö ár með Fylki. Mist er vinstri bakvörður, fædd 2003, og á að baki tæplega 70 leiki í efstu tveimur deildum Íslandsmótsins. Fyrr á þessu ári lék hún með U23 landsliði Íslands þegar liðið vann 1-2 sigur á Finnum. Það var hennar fyrsti leikur í íslensku treyjunni.

FRÉTTIR12.12.2024, 13:00

Þrír leikmenn í KR (Staðfest)

Kvennalið KR hefur á síðustu dögum bætt við sig þremur leikmönnum en liðið leikur í Lengjudeildinni á næstu leiktíð eftir að hafa komist upp úr 2. deild kvenna.

FRÉTTIR11.12.2024, 23:55

Þórsarar sækja tvo markverði og Aron Birkir framlengir (Staðfest)

Þórsarar tilkynntu í kvöld að þrír markverðir væru búnir að skrifa undir samninga við félagið. Tveir þeirra ganga í raðir félagsins en það eru þeir Franko Lalic og Víðir Jökull Valdimarsson. Franko Lalic er 33 ára Króati sem kemur til Þórs frá Dalvík/Reyni þar sem hann hefur verið undanfarin tvö ár. Þar á undna var hann með Víkingi Ólafsvík og Þrótti Reykjavík og á alls að baki 111 leiki á Íslandi. <i>„Auk þess að spila mun Franko hafa yfirumsjón með markmannsþjálfun félagsins. Samningurinn er til tveggja ára,"</I> segir í frétt á heimasíðu Þórs.

FRÉTTIR11.12.2024, 18:30

Hanna Faith og Snædís Logadóttir í Aftureldingu (Staðfest)

Kvennalið Aftureldingar hefur krækt í tvo leikmenn fyrir komandi átök í Lengjudeildinni á næsta tímabili. Það eru þær Snædís Logadóttir og Hanna Faith Victoriudóttir. Snædís kemur til Aftureldingar eftir a hafa klárað háskólanám í Bandaríkjunum. Hún er uppalin i Val en hefur einnig spilað fyrir FH og ÍA. Hún er 26 ára miðvörður og lék síðast á Íslandi árið 2019, þá með FH. Hún hefur skorað eitt mark í 19 KSÍ leikjum á sínum ferli.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.