Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25134 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR27.11.2024, 16:40

Þrettán árum seinna er Elfar Árni mættur aftur heim (Staðfest)

Elfar Árni Aðalsteinsson er genginn í raðir Völsungs en hann kemur frá nágrönnunum í KA. Elfar er 34 ára framherji sem uppalinn er hjá Völsungi og lék fyrstu árin í meistaraflokki með liðinu. Hann fór til Breiðabliks fyrir tímabilið 2012 og var þar í þrjú tímabil áður en hann hélt í KA þar sem hann hefur verið síðan. Elfar er þriðji leikjahæsti leikmaður KA í sögu efstu deildar, en efstu fjórir eru allt Húsvíkingar. Í 145 leikjum hefur hann skorað 45 mörk sem er það næstmesta fyrir KA efstu deild.

FRÉTTIR26.11.2024, 15:23

Eiður Aron áfram hjá Vestra (Staðfest)

Vestri tilkynnti rétt í þessu að Eiður Aron Sigurbjörnsson hefði endursamið við félagið og er hann nú samningsbundinn félaginu út næsta tímabil. Eiður nýtti sér uppsagnarákvæði í samningi sínum við Vestra eftir að tímabilinu lauk og skoðaði í kringum sig. Niðurstaðan varð sú að hann endursamdi fyrir vestan. Samúel Samúelsson hjá Vestra sagði frá því fyrr í þessum mánuði að félagið myndi ekki bjóða Eiði Aroni samning strax en þegar leið á mánuðinn fóru viðræður um áframhald af stað. Eiður var valinn besti leikmaður Vestra á tímabilinu. Liðið endaði í 10. sæti Bestu deildarinnar sem nýliði.

FRÉTTIR26.11.2024, 14:21

Andri Rúnar í Stjörnuna (Staðfest)

Andri Rúnar Bjarnason hefur gengið frá samningi við Stjörnuna en félagið staðfestir þetta í tilkynningu núna áðan. Andri lék á síðasta tímabili með Vestra en hann hefur einnig leikið með BÍ/Bolungarvík, Víkingi, Grindavík, ÍBV og Val hér á Íslandi.

FRÉTTIR25.11.2024, 17:30

20 mest lesnu fréttir vikunnar - Íslenskur táningur fær lof

Það er komið mikið líf og fjör í íslenska leikmannamarkaðinn og fjallað var um íslenskan táning í dönskum fjölmiðlum. Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.

FRÉTTIR25.11.2024, 16:50

Age Hareide hættur sem landsliðsþjálfari Íslands (Staðfest)

Norðmaðurinn Age Hareide er hættur sem landsliðsþjálfari Íslands en þetta kemur fram í tilkynningu frá KSÍ. Í tilkynningunni segir: <i>&bdquo;Age Hareide hefur ákveðið að hætta sem þjálfari A-landsliðs karla og hefur hann því látið af störfum að eigin frumkvæði. Hareide tók við liðinu af Arnari Þór Viðarssyni í apríl 2023 og stýrði því í alls 20 leikjum. KSÍ þakkar Age fyrir hans störf og óskar honum alls hins besta."</I>

FRÉTTIR25.11.2024, 16:35

Lúkas Magni laus undan samningi (Staðfest)

Á föstudag greindi Kristján Óli Sigurðsson frá því á <i>X</I> að Lúkas Magni Magnason væri búinn að rifta samningi sínum við KR. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari og yfirmaður fótboltamála hjá KR, staðfesti við Fótbolta.net að búið væri að fella niður samning Lúkasar við félagið. Lúkas Magni er 19 ára varnarmaður sem kom í KR fyrir tímabilið 2023 frá Breiðabliki. Hann á að baki sjö leiki fyrir unglingalandsliðin.

FRÉTTIR24.11.2024, 22:07

Eiður Gauti í KR (Staðfest)

Knattspyrnudeild KR tilkynnti fyrri í dag um kom Atla Hrafns Andrasonar til félagsins og nú rétt í þessu kynnti félagið komu Eiðs Gauta Sæbjörnssonar en báðir koma frá HK.

FRÉTTIR24.11.2024, 20:42

Atli Hrafn heim í KR (Staðfest)

Atli Hrafn Andrason er kominn aftur heim í KR en hann kemur til félagsins frá HK. Þetta kemur fram í tilkynningu frá knattspyrnudeild félagsins í dag.

FRÉTTIR24.11.2024, 19:13

Arnór Gauti í Grindavík (Staðfest)

Varnarmaðurinn Arnór Gauti Úlfarsson er genginn í raðir Grindavík frá ÍR. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Grindvíkingum í dag.

FRÉTTIR24.11.2024, 18:53

Birkir Valur og Bragi Karl í FH (Staðfest)

FH-ingar hafa fengið öfluga viðbót við leikmannahópinn en þeir Birkir Valur Jónsson og Bragi Karl Bjarkason eru gengnir til liðs við félagið.

FRÉTTIR24.11.2024, 13:15

Frederik Schram aftur til Roskilde (Staðfest)

<p>Frederik Schram staðfesti það fyrr í þessum mánuði að hann muni ekki spila áfram á Íslandi eftir að samningur hans við Val rann út.</p><p>Hann hefur nú fundið sér nýtt félag en hann snýr aftur til Roskilde í Danmörku. Hann skrifar undir samning sem gildir til ársins 2027.</p>

FRÉTTIR23.11.2024, 08:00

Jóhanna Elín í Víking (Staðfest)

Knattspyrnudeild Víkings hefur fengið til félagsins hina 18 ára gömlu Jóhönnu Elínu Halldórsdóttur en hún kemur til félagsins frá Selfossi.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.