Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25134 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR22.11.2024, 15:18

Valgeir Valgeirs í Breiðablik (Staðfest)

Breiðablik hefur staðfest að Valgeir Valgeirsson sé genginn í raðir félagsins. Hann lék síðast með Örebro í Svíþjóð en er uppalinn hjá HK, nágrönnum Blika. Fótbolti.net sagði frá því fyrst í gær að Valgeir væri að ganga í raðir Breiðabliks. Á endanum stóð valið á milli Blika og Víkings. Samningur Valgeirs við Blika gildir til 2028.

FRÉTTIR22.11.2024, 13:32

Eyþór Wöhler og Hrafn Guðmunds rifta við KR (Staðfest)

KR tilkynnti rétt í þessu að Eyþór Aron Wöhler væri að kveðja félagið. Sagt er að félagið og leikmaðurinn hafi komist að samkomulagi um að Eyþóri sé frjálst að leita á önnur mið. Eyþór gekk í raðir KR skömmu eftir að tímabilið 2024 hófst, spilaði 22 leiki í deild og bikar og skoraði í þeim þrjú mörk. <i>„Við þökkum Eyþóri fyrir veru hans í KR og óskum honum góðs gengis í hverju því sem hann tekur sér fyrir hendur,“</I> segir Páll Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar KR. <i>„Ég kveð KR með söknuði, þetta er frábær klúbbur með einstaka stuðningsmenn og ég óska klúbbnum alls hins besta. Ég lagði hart að mér og vildi auðvitað fá meiri spiltíma en ég geri mér grein fyrir því og virði að það er þjálfarinn sem velur liðið og það eru margir góðir knattspyrnumenn í KR sem ég er í samkeppni við. Því þarf ég að stíga eitt skref til baka og fara í klúbb þar sem ég fæ meiri spiltíma og get sannað mig sem alvöru senter. Og það ætla ég að gera,”</I> er haft eftir Eyþóri í tilkynningu KR. Eyþór er 22 ára sóknarmaður sem uppalinn er hjá Aftureldingu og hefur einnig leikið með Breiðabliki og ÍA. Hann á að baki fimmtán leiki og fjögur mörk fyrir yngri landsliðin.

FRÉTTIR22.11.2024, 12:00

Tómas Atli frá FH í Hauka (Staðfest)

Tómas Atli Björgvinsson er genginn í raðir Haukum. Hann var síðast samningsbundinn FH en lék á láni með KFA í 2. deild í sumar. Hann skoraði eitt mark í deildinni og eitt í bikarnum í sumar. Tómas Atli er nítján ára miðjumaður sem skrifar undir tveggja ára samning á Ásvöllum.

FRÉTTIR21.11.2024, 16:00

Ágúst Orri í Breiðablik (Staðfest)

Ágúst Orri Þorsteinsson er kominn aftur heim í Breiðablik en félagið kaupir hann frá ítalska félaginu Genoa. Ágúst Orri skrifar undir samning sem gildir út tímabilið 2028. Ágúst Orri er nítján ára kantmaður sem seldur var til Genoa frá Breiðabliki fyrir rúmu ári síðan en hann snýr nú aftur heim í uppeldisfélagið. Fótbolti.net fjallaði um það fyrir helgi að um Ágúst Orri yrði dýrasti leikmaður sem íslenskt félag hefur keypt. Samkvæmt nýrri upplýsingum er Aron Bjarnason sá dýrasti en kaupverðið á Ágústi getur hækkað og er ekki langt frá því sem Breiðablik greiddi fyrir Aron síðasta vetur.

FRÉTTIR21.11.2024, 09:00

Guðmundur Rafn heim í Stjörnuna (Staðfest)

<p>Markvörðurinn Guðmundur Rafn Ingason er genginn til liðs við Stjörnuna. Hann kemur frá Fylki en samningur hans við Árbæjarliðið rann út eftir tímabilið.</p>

FRÉTTIR20.11.2024, 11:30

Patrick Vieira tekinn við Genoa (Staðfest)

Það eru fréttir frá ÍTalíu, Genoa í Seríu A hefur ráðið Patrick Vieira sem þjálfara liðsins. Vieira tekur við af Alberto Gilardino sem var látinn fara í gær. Vieira er 48 ára Frakki sem stýrði Crystal Palace á árunum 2021-2023 og yfirgaf Strasbourg í sumar eftir að hafa komist að samkomulagi um starfslok.

FRÉTTIR20.11.2024, 09:43

Bjarni Aðalsteins framlengir við KA (Staðfest)

KA tilkynnti í morgun að Bjarni Aðalsteinsson sé búinn að skrifa undir nýjan tveggja ára samning við félagið. Hann er nú samningsbundinn út tímabilið 2026. Fyrri samningur hans rann út í lok október en Bjarni hefur verið í lykilhlutverki í liði KA undanfarin ár. Í sumar skoraði hann sex mörk, þrjú deildinni og þrjú í bikarnum.

FRÉTTIR19.11.2024, 13:00

Þórdís Elva komin heim frá Svíþjóð og semur við Þrótt (Staðfest)

Þróttur tilkynnti í dag að Þórdís Elva Ágústsdóttir væri búin að skrifa undir tveggja ára samning við félagið. Þórdís kemur í Þrótt frá Växjö, spilaði með liðinu í sænsku úrvalsdeildinni á liðnu tímabili. Miðjumaðurinn var áður leikmaður Vals og varð bæði Íslands- og bikarmeistari með liðinu tímabilið 2023. Hún er uppalin hjá Haukum og hefur einnig leikið með FH, Fylki og Val á Íslandi. Þórdís Elva kom við sögu í 24 af 26 leikjum Växjö á nýliðnu tímabili, byrjaði tólf leiki og skoraði tvö mörk. Växjö endaði í 8. sæti deildarinnar. Þórdís Elva var liðsfélagi Bryndísar Örnu Níelsdóttur hjá Växjö.

FRÉTTIR18.11.2024, 17:30

20 mest lesnu fréttir vikunnar - Metfé og David Coote

Vinsælasta frétt síðustu viku sneri að því að Breiðablik er að kaupa Ágúst Orra Þorsteinsson aftur heim frá Ítalíu. Þá var dómarinn David Coote mikið á milli tannana á fólki. Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.

FRÉTTIR18.11.2024, 16:19

Áslaug Dóra og Katla María yfirgefa Örebro (Staðfest)

Sænska félagið Örebro féll úr sænsku úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili og verður í næstefstu deild á komandi tímabili. Vegna fallsins var samningum við marga leikmenn rift, þar á meðal við báða Íslendingana sem hafa verið í röðum félagsins.

FRÉTTIR18.11.2024, 13:52

Valur kaupir Hrafnhildi Sölku (Staðfest)

Stjarnan hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem sagt er að Valur sé að kaupa Hrafnhildi Sölku Pálmadóttur. <i>„Stjarnan og Valur hafa komist að samkomulagi um kaup á Hrafnhildi Sölku Pálmadóttur. Við þökkum Hrafnhildi fyrir sinn tíma í bláu treyjunni og óskum henni góðs gengis á nýjum stað!"</I> segir í tilkynningu Stjörnunnar.

FRÉTTIR18.11.2024, 13:48

Hörður Snævar þjálfar Dalvík/Reyni (Staðfest)

Dalvík/Reynir tilkynnti rétt í þessu að félagið væri búið að finna nýjan þjálfara fyrir tímabilið 2025. Stjórn þurfti ekki að leita langt því Hörður Snævar Jónsson, sem var í stjórn félagsins á liðnu tímabili, er nýr þjálfari liðsins. Hann tekur við af Dragan Stojanovic. Hörður er ritstjóri <i>433.is</I> og var á hliðarlínunni í lokaumferð Lengjudeildarinnar þegar Dragan tók út leikbann. Þetta er fyrsta þjálfarastarf Harðar sem fæddur er árið 1990. Siguróli Kristjánsson, Moli, verður aðstoðarmaður Harðar en tekið er fram að hann verði í hlutverki tæknilegs ráðgjafa og muni sinna &bdquo;ýmsum verkefnum fyrir félagið". Moli hefur áður starfað hjá Dalvík/Reyni í svipuðu hlutverki með góðum árangri. Í tilkynningu D/R er sagt að búast megi við að þjálfarateymið verði stækkað enn frekar þegar líður á veturinn. D/R verður í 2. deild á næsta tímabili eftir að hafa fallið úr Lengjudeildinni í sumar.

FRÉTTIR17.11.2024, 11:49

Birkir Valur yfirgefur HK (Staðfest)

HK tilkynnti rétt í þessu að Birkir Valur Jónsson væri búinn að yfirgefa herbúðir félagsins en samningur hans er runninn út. Hægri bakvörðurinn er uppalinn í HK og er fjórði leikjahæsti leikmaður í sögu félagsins í efstu deild. Birkir hefur spilað 96 leiki í efstu deild, sex leikjum minna en Arnþór Ari Atlason.

FRÉTTIR15.11.2024, 20:00

Pogba er farinn frá Juventus (Staðfest)

Franski miðjumaðurinn Paul Pogba er búinn að staðfesta að hann hefur yfirgefið ítalska stórveldið Juventus eftir að hafa samið við félagið um starfslok.

FRÉTTIR15.11.2024, 17:00

Una Rós í Fram (Staðfest)

Una Rós Unnarsdóttir hefur gengið til liðs við Fram frá uppeldisfélagi sínu, Grindavík. Hún gerir tveggja ára samning við Fram eða út tímabilið 2026. Una er 22 ára kraftmikill og tæknilega öflugur miðjumaður sem hefur verið í lykilhlutverki hjá Grindavík undanfarin ár þar sem hún bar fyrirliðabandið.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.