Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25135 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR31.10.2024, 16:08

Tiago yfirgefur Fram (Staðfest)

Fram tilkynnti rétt í þessu að miðjumaðurinn Tiago Fernandes yrði ekki áfram hjá félaginu. Miðjumaðurinn kom fyrst til Fram árið 2018 og var í tvö tímabil áður en hann söðlaði um. Hann lék með Grindavík 2021 en sneri aftur í Fram fyrir tímabilið 2022 og átti þá frábært tímabil. Hann raðaði inn stoðsendingum í endurkomu Framara í efstu deild og vakti athygli annarra félaga. Hann var m.a. orðaður við bæði Breiðablik og Val. Í sumar var hann í varnarsinnaðra hlutverki, beið meira til baka sem aftasti miðjumaður, lék 22 leiki og lagði upp þrjú mörk. Hann er 29 ára Portúgali sem uppalinn er hjá Sporting. Samningur hans við Fram er að renna út og tilkynnti félagið í dag að hann yrði ekki endurnýjaður.

FRÉTTIR31.10.2024, 14:20

Jóhann Birnir heldur áfram með ÍR (Staðfest)

Eins og Fótbolti.net sagði frá fyrir stuttu, þá verður Jóhann Birnir Guðmundsson áfram þjálfari ÍR. ÍR hefur núna staðfest þau tíðindi en hann mun stýra liðinu næstu tvö árin. <i>„Jói kom fyrst til félagsins fyrir tveimur árum þar sem hann var ráðinn sem annar af tveimur aðalþjálfurum liðsins. Liðið hefur náð góðum árangri eftir komu Jóa til félagsins en við ætlum bara að gefa enn meira í á næsta ári og halda áfram að gera enn betur,"</I> segir í tilkynningu ÍR.

FRÉTTIR31.10.2024, 09:44

KR tilkynnir komu Alexanders Helga (Staðfest)

KR hefur birt fréttatilkynningu þess efnis að Alexander Helgi Sigurðarson sé genginn í raðir félagsins frá Breiðabliki. Það var sagt frá því í júlí síðastliðnum að Alexander Helgi væri búinn að semja um að fara til KR eftir tímabilið sem var að klárast um síðustu helgi.

FRÉTTIR30.10.2024, 11:32

Kristján Guðmunds og Matthías stýra Val saman (Staðfest)

Matthías Guðmundsson og Kristján Guðmundsson hafa saman tekið við kvennaliði Vals, þeir eru báðir aðalþjálfarar liðsins. Fjallað var um það í gær að Matthías, sem er fyrrum leikmaður Vals og fyrrum aðstoðarmaður Péturs Péturssonar hjá kvennaliðinu, væri að taka við en nú hefur verið opinberað að Kristján verður með honum. Kristján þekkir vel til hjá Val en hann þjálfaði meistaraflokk karla hjá félaginu í tvö ár. <i>„Ég spilaði undir Kristjáni sem leikmaður í Val og ber mikla virðingu fyrir honum sem þjálfara. Við höfum rætt saman og horfum á hlutina mjög svipað.,"</i> segir Matthías í fréttatilkynningu Vals.

FRÉTTIR29.10.2024, 22:37

Ómar Ingi hættur með HK (Staðfest)

Knattspyrnudeild HK tilkynnti í kvöld að Ómar Ingi Guðmundsson væri hættur sem þjálfari meistaraflokks karla, en hann hefur ákveðið að róa á önnur mið.

FRÉTTIR29.10.2024, 16:30

Erin McLeod semur við félag í Kanada (Staðfest)

Erin McLeod, sem lék með Stjörnunni síðastliðin tvö sumur, hefur samið við Halifax Tides FC í Kanada. Erin, sem er 41 árs, samdi við Stjörnuna í fyrra og lék síðasta sumar 16 leiki með liðinu í Bestu deildinni.

FRÉTTIR28.10.2024, 20:39

Vicente Valor yfirgefur ÍBV (Staðfest)

Vicente Valor hefur ákveðið að gera ekki nýjan samning við ÍBV en þessi 26 ára spænski sóknarmiðjumaður var hjá Eyjaliðinu í eitt ár. Hann var lykilmaður í liði ÍBV sem vann Lengjudeildina í sumar og tryggði sér þar með sæti í Bestu deildinni. Hann skoraði átta mörk í tuttugu leikjum og var valinn í lið ársins í deildinni.

FRÉTTIR28.10.2024, 19:37

Balotelli til Genoa (Staðfest)

<p>Mario Balotelli er mættur aftur í efstu deild á Ítalíu og hefur skrifað undir samning við Genoa út tímabilið.</p>

FRÉTTIR28.10.2024, 18:00

20 mest lesnu fréttir vikunnar - Grænu brettin

Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar. Það var mikil spenna fyrir úrslitaleik Bestu deildarinnar og Víkingur vann frækinn Evrópusigur. Þetta og meira á lista vikunnar.

FRÉTTIR28.10.2024, 11:52

Ten Hag rekinn (Staðfest)

Manchester United er búið að reka Erik ten Hag úr starfi. Hann hafði verið stjóri liðsins frá því að hann tók við vorið 2022. United tilkynnti tíðindin rétt í þessu og kemur fram að Ruud van Nistelrooy, aðstoðarmaður Ten Hag, taki við til bráðabirgða.

FRÉTTIR27.10.2024, 15:45

Pétur Péturs hættur með Val (Staðfest)

Það verða þjálfaraskipti hjá kvennaliði Vals en Pétur Pétursson er hættur þjálfun liðsins. Undir stjórn Péturs vann Valur fjóra Íslandsmeistaratitla og tvo bikarmeistaratitla en hann tók við liðinu árið 2017. Í tilkynningu Vals segir að ekki sé ákveðið hvaða aðili muni taka við liðinu af Pétri en að ný stjórn vonist til þess að klára þau mál sem allra fyrst.

FRÉTTIR25.10.2024, 16:34

Jón Daði til Wrexham (Staðfest) - Samningur til janúar

Hollywood-félagið Wrexham sem leikur í ensku C-deildinni hefur tilkynnt um komu Jóns Daða Böðvarssonar en íslenski sóknarmaðurinn hefur gert samning þar til í janúar. Jón Daði er 32 ára og lék síðast fyrir Bolton en kemur til Wrexham á frjálsri sölu. Ef honum vegnar vel hjá Wrexham mun hann vafalítið fá lengri samning. <i>„Það er frábært að vera hjá félagi eins og Wrexham. Allir þekkja söguna og það er mjög spennandi að vera hluti af þessu. Vonandi get ég hjálpað félaginu að ná frekari árangri,"</i> segir Jón Daði. <i>„Það er gott að vera kominn aftur í klefann, ég saknaði þess. Ég held að konan mín hafi verið orðin brjáluð! Ég hef æft og reynt að halda mér í formi en það er gott að vera kominn aftur í umhverfi þar sem ég get unnið betur í líkamlega þættinum."</i> <i>„Þetta snýst um að finna mig aftur á næstu mánuðum. Ég vil finna sjálfstraustið aftur, leggja mig fram fyirr félagið og sjá hvert það kemur mér."</i> Wrexham er í öðru sæti ensku C-deildarinnar en félagið hefur farið upp um tvær deildir á síðustu tveimur árum eftir að Hollywood-leikararnir Ryan Reynolds og Rob McElhenney eignuðust það.

FRÉTTIR24.10.2024, 20:29

Mancini hættur með sádi-arabíska landsliðið (Staðfest)

Ítalski þjálfarinn Roberto Mancini er hættur með sádi-arabíska landsliðið aðeins ári eftir að hafa skrifað undir fjögurra ára samning en þetta kemur fram í tilkynningu sádi-arabíska fótboltasambandsins í dag.

FRÉTTIR24.10.2024, 15:00

Valdimar yfirgefur Selfoss (Staðfest)

Selfoss tilkynnti í dag að Valdimar Jóhannsson væri að kveðja uppeldisfélagið og verður því ekki með Selfossi í Lengjudeildinni á næsta tímabili.

FRÉTTIR23.10.2024, 15:16

Theodór Elmar orðinn aðstoðarmaður Óskars hjá KR (Staðfest)

Theodór Elmar Bjarnason hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna og taka stöðu aðstoðarþjálfara hjá KR. <i>„Ég legg skóna sáttur á hilluna eftir farsælan og ógleymanlegan feril. Ég hef fengið að upplifa ólíka menningarheima og geng sáttur frá borði. Ég vil þakka öllum stuðningsmönnum, leikmönnum, þjálfurum, starfsmönnum og síðast en ekki síst fjölskyldu minni fyrir þolinmæðina og stuðninginn. Ég get ekki sagt annað en að ég sé spenntur fyrir komandi verkefnum,"</i> segir Theodór Elmar í tilkynningu KR. Hann hefur spilað 120 leiki fyrir KR og skorað 12 mörk, auk þess hefur hann spilað 41 landsleik.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.