FRÉTTIR29.08.2024, 08:08
Birmingham City hefur fengið til sín fjórtán leikmenn í félagaskiptaglugganum, þar á meðal íslenska landsliðsmanninn Willum Þór Willumsson.
Nýjasti leikmaður liðsins er skoski sóknarmaðurinn Lyndon Dykes sem hefur verið keyptur frá Queens Park Rangers. Hann skoraði 37 mörk í 165 leikjum fyrir QPR en hefur gert þriggja ára samning við Birmingham.
Birmingham spilar í League One, C-deildinni, og er með sjö stig úr fyrstu þremur leikjum sínum.
Þá má geta þess að Birmingham hefur tilkynnt að framherjinn Juninho Bacuna hafi yfirgefið félagið til að ganga í raðir Al-Wehda í Sádi-Arabíu.
FRÉTTIR29.08.2024, 07:40
Southampton er búið að selja Carlos 'Charly' Alcaraz til Flamengo í Brasilíu fyrir um 15 milljónir punda.
FRÉTTIR29.08.2024, 07:20
Spænski bakvörðurinn Marcos Alonso hefur gert eins árs samning við spænska félagið Celta Vigo eftir að samningur hans við Barcelona rann út í sumar.
FRÉTTIR28.08.2024, 23:40
Evrópudeildarmeistarar Atalanta eru búnir að gera ýmsar breytingar á leikmannahópi sínum fyrir nýja leiktíð í ítalska boltanum og voru að krækja í nokkra nýja leikmenn á dögunum.
FRÉTTIR28.08.2024, 19:56
Ítalska félagið Atalanta er búið að krækja sér í varnarmanninn Odilon Kossounou á lánssamningi frá Bayer Leverkusen.
FRÉTTIR28.08.2024, 19:49
Þýskalandsmeistarar Bayer Leverkusen eru búnir að tryggja sér bakvörðinn öfluga Nordi Mukiele á lánssamningi sem gildir út leiktímabilið.
FRÉTTIR28.08.2024, 19:18
Ítalska stórveldið Juventus hefur gengið frá félagaskiptum fyrir Teun Koopmeiners sem kemur til félagsins úr röðum Atalanta.
FRÉTTIR28.08.2024, 17:49
OGC Nice er búið að staðfesta félagaskipti Youssoufa Moukoko til félagsins frá Borussia Dortmund.
FRÉTTIR28.08.2024, 17:00
Fiorentina hefur fengið franska varnartengiliðinn Yacine Adli á láni frá AC Milan, með möguleika á kaupum eftir tímabilið.
Þessi 24 ára leikmaður verður á láni út tímabilið og gerir svo fjögurra ára samning við Fiorentina ef félagið nýtir sér ákvæðið.
FRÉTTIR28.08.2024, 16:37
Brentford hefur keypt brasilíska vængmanninn Gustavo Nunes frá Gremio fyrir um tíu milljónir punda. Ungstirnið hefur skrifað undir sex ára samning, með möguleika á tveimur árum til viðbótar.
Nunes er átján ára og segir Thomas Frank stjóri Brentford að það hafi þurft harða baráttu við önnur áhugasöm félög til að landa honum.
FRÉTTIR28.08.2024, 11:00
Skotlandsmeistarar Celtic hafa fengið vinstri bakvörðinn Alex Valle lánaðan frá Barcelona út tímabilið.
Valle er tvítugur og kom í gegnum La Masia akademíuna frægu. Hann hefur verið ónotaður varamaður í fyrstu tveimur leikjum Börsunga í La Liga.
Hann lék á láni hjá Levante í spænsku B-deildinni á síðasta tímabili.
FRÉTTIR28.08.2024, 10:30
Nýliðar Ipswich í ensku úrvalsdeildinni hafa fengið vængmanninn Chiedozie Ogbene frá Luton. Írski landsliðsmaðurinn er keyptur á átta milljónir punda og skrifaði undir fjögurra ára samning á Portman Road.
FRÉTTIR28.08.2024, 09:30
Burnley í Championship-deildinni hefur fengið miðjumanninn Hannibal Mejbri frá Manchester United.
Þessi 21 árs landsliðsmaður Túnis lék á lánssamningi hjá Sevilla á síðasta tímabili.
FRÉTTIR28.08.2024, 09:00
Blackburn Rovers, lið Arnórs Sigurðssonar, hefur fengið velski vinstri bakvörðinn Owen Beck á láni frá Liverpool.
FRÉTTIR28.08.2024, 07:30
Englendingurinn Jonjo Shelvey verður áfram í Tyrklandi en hann hefur samið við Eyupspor í B-deildinni.
FRÉTTIR28.08.2024, 06:00
Argentínski markvörðurinn Juan Musso er kominn til Atlético Madríd frá Evrópudeildarmeisturum Atalanta.
FRÉTTIR28.08.2024, 06:00
Ítalski miðvörðurinn Angelo Ogbonna hefur fundið sér nýtt félag eftir að hafa yfirgefið West Ham í sumar, en hann hefur samið við enska B-deildarfélagið Watford.
FRÉTTIR28.08.2024, 06:00
Ítalska félagið Roma hefur staðfest kaupin á sádi-arabíska hægri bakverðinum Saud Abdulhamid en hann kemur frá deildarmeisturum Al Hilal.
FRÉTTIR27.08.2024, 19:21
Liverpool staðfesti í kvöld kaupin á georgíska landsliðsmarkverðinum Giorgi Mamardashvili en hann kemur til félagsins frá spænska félaginu Valencia. Markvörðurinn verður áfram hjá Valencia á láni út leiktíðina.
FRÉTTIR27.08.2024, 19:07
Fílabeinsstrendingurinn Hamed Traore er mættur til franska félagsins Auxerre á láni frá Bournemouth.