Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25163 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR24.01.2024, 17:53

Íris Dögg yfirgefur Þrótt (Staðfest)

Í dag var tilkynntur nýr markvörður hjá Þrótti. Mollee Swift kemur til félagsins í febrúar frá Bandaríkjunum og gaf félagið út að hún myndi verja mark liðsins. Íris Dögg Gunnarsdóttir hefur varið mark Þróttar undanfarin þrjú ár og var valin í A-landsliðið nokkrum sinnum á síðustu tveimur árum. Hún fékk fyrst kallið á EM þegar hún var kölluð inn í hópinn vegna meiðsla í markvarðahópnum.

FRÉTTIR24.01.2024, 17:30

Chicharito heim til Chivas (Staðfest)

Javier Hernandez, eða Chicharito eins og hann er oft kallaður, er að snúa aftur heim til Chivas. Félagið þar sem Chicharito ólst upp hjá heitir Guadalajara. Mexíkóski framherjinn er þekktastur fyrir tíma sinn hjá Manchester United en hann var þar á árunum 2010-2015 og varð hann í tvígang enskur meistari. Hann skoraði síðasta markið sem United skoraði undir stjórn Sir Alex Ferguson í 5-5 jafntefli gegn WBA. Alls skoraði hann 59 mörk í 157 leikjum fyrir United. Hann hefur einnig leikið með Real Madrid, Sevilla, West Ham og Bayer Leverkusen á sínum ferli.

FRÉTTIR24.01.2024, 16:14

Heiða Ragney í Breiðablik (Staðfest)

Heiða Ragney Viðarsdóttir hefur skrifað undir samning við Breiðablik en hún kemur frá Stjörnunni þar sem hún hefur spilað undanfarin þrjú tímabil. Samningurinn við Breiðablik gildir til tveggja ára. Á síðasta tímabili lék hún alla leiki Stjörnunnar og skoraði tvö mörk. Hún er 28 ára djúpur miðjumaður sem á að baki ellefu tímabil í efstu deild. Hún er Þórsari sem hóf ferilinn í meistaraflokki með Þór/KA tímabilið 2011.

FRÉTTIR24.01.2024, 15:55

Þróttur fær bandarískan markvörð (Staðfest)

Þróttur tilkynnti í dag félagið væri búið að ná samkomulagi við Mollee Swift um að leika með liðinu í sumar. Swift er bandarískur markvörður sem skrifar undir tveggja ára samning. Í tilkynningu Þróttar segir að Swift muni verja mark Þróttar. Íris Dögg Gunnarsdóttir hefur varið mark liðsins síðustu þrjú árin en hún varð samningslaus eftir að síðasta tímabili lauk.

FRÉTTIR23.01.2024, 13:10

Keyptur til Cardiff og fer beint til Freysa (Staðfest)

Freyr Alexandersson, þjálfari Kortrijk í Belgíu, hefur fengið japanska varnarmanninn Ryotaro Tsunoda frá Cardiff á láni út yfirstandandi tímabil. Tsunoda mun hjálpa Kortrijk í fallbaráttunni í Belgíu en liðið er sem stendur á botni belgísku úrvalsdeildarinnar.

FRÉTTIR23.01.2024, 12:30

Keflavík fær senegalskan vængmann (Staðfest)

Keflavík tilkynnti í morgun að félagið væri búið að semja við nýjan leikmann. Það er annar leikmaðurinn sem gengur í raðir félagsins frá því að liðið féll úr Bestu deildinni síðasta haust. Kári Sigfússon ruddi brautina fyrr í þessum mánuði.

FRÉTTIR22.01.2024, 19:43

Saga Líf í Aftureldingu (Staðfest)

Afturelding er að styrkja leikmannahópinn sinn fyrir komandi átök í Lengjudeild kvenna og var að krækja í Sögu Líf Sigurðardóttur úr röðum Þórs/KA.

FRÉTTIR22.01.2024, 17:19

Birnir Snær í Halmstad (Staðfest)

Kantmaðurinn Birnir Snær Ingason er genginn í raðir sænska félagsins Halmstad en hann skrifar undir þriggja ára samning við félagið.

FRÉTTIR22.01.2024, 13:50

Blakala ver mark Selfyssinga (Staðfest) - Gengið vel undir stjórn Bjarna Jó

Pólski markvörðurinn Robert Blakala hefur skrifað undir tveggja ára samning við Selfoss. Blakala kemur frá Njarðvík þar sem hann hefur leikið undanfarin ár en hann hefur einnig leikið fyrir Vestra á Íslandi. Blakala er þrítugur og kemur til Selfoss sem missti Stefán Þór Ágústsson í Val í vetur. Stefán hafði varið mark Selfoss síðustu tímabilin.

FRÉTTIR22.01.2024, 12:13

Breiðablik fær marksækinn finnskan bakvörð (Staðfest)

Breiðablik hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í Bestu deildinni. Anna Nurmi hefur skrifað undir samnign sem gildir út tímabilið. Anna Nurmi er 26 ára gömul og spilar sem vinstri bakvörður. Hún er finnsk og kemur frá finnska félaginu Åland United. Hún skoraði sex mörk í 23 leikjum á síðasta tímabili.

FRÉTTIR21.01.2024, 21:30

Þorleifur til Debreceni (Staðfest)

Þorleifur Úlfarsson er genginn til liðs við ungverska félagið Debreceni frá Houston Dynamo í Bandaríkjunum. Þetta kemur fram í tilkynningu ungverska félagsins í dag.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.