FRÉTTIR08.01.2024, 12:00
Breki Ómarsson hefur nýtt sér riftunarákvæði í samningi sínum við ÍBV og verður hann ekki áfram hjá félaginu. Hann átti eitt ár eftir af samningi sínum við félagið en gat fengið sig lausan.
Breki er 25 ára sóknarmaður sem uppalinn er í Vestmannaeyjum og hefur til þessa leikið allan sinn feril þar.
FRÉTTIR08.01.2024, 10:27
Birmingham hefur ráðið Tony Mowbray sem nýjan stjóra á tveggja og hálfs árs samningi, sex dögum eftir að félagið rak Wayne Rooney.
Mowbray er margreyndur stjóri, 60 ára gamall, en var rekinn frá Sunderland þann 4. desember.
FRÉTTIR07.01.2024, 21:00
Dorival Junior er hættur þjálfun Sao Paulo í Brasilíu en þetta staðfestir félagið í tilkynningu sem var send út fyrir stuttu. Hann er að taka við brasilíska landsliðinu.
FRÉTTIR07.01.2024, 16:07
<p>Jasmín Erla Ingadóttir er gengin til liðs við Val frá Stjörnunni en hún skrifar undir þriggja ára samning við félagið.</p>
FRÉTTIR07.01.2024, 10:45
<p>Sasa Kalajdzic er genginn til liðs við Frankfurt á láni frá Wolves út tímabilið.</p>
FRÉTTIR07.01.2024, 08:00
Ítalíumeistarar Napoli þurfa að styrkja leikmannahópinn sinn í janúar eftir slæmt gengi á fyrri hluta nýs tímabils.
FRÉTTIR06.01.2024, 23:40
AS Roma er búið að krækja í hollenska miðvörðinn Dean Huijsen á lánssamningi sem gildir út tímabilið.
FRÉTTIR06.01.2024, 18:10
Þrír uppaldir Þórsarar eru búnir að skrifa undir nýja samninga við félagið sitt sem gilda næstu þrjú árin.
FRÉTTIR06.01.2024, 16:01
Eva Ýr Helgadóttir er gengin í raðir Selfoss frá Aftureldingu en þetta kemur fram í tilkynningu frá Selfyssingum í dag.
FRÉTTIR06.01.2024, 12:58
FH-ingar hefja árið með pomp og prakti en í dag var Böðvar Böðvarsson kynntur sem nýr leikmaður félagsins og snýr hann því aftur heim eftir sex ára dvöl erlendis.
FRÉTTIR05.01.2024, 18:50
<p>Gígja Valgerður Harðardóttir er gengin til liðs við Víking frá KR og skrifar undir tveggja ára samning.</p>
FRÉTTIR05.01.2024, 16:30
KV tilkynnti í dag að samkomulag væri í höfn um að Orri Fannar Þórisson taki við sem nýr þjálfari liðsins.
Viktor Bjarki Arnarsson þjálfaði liðið seinni hluta síðasta tímabils og tekur Orri Fannar við af honum.
KV verður í 3. deild í sumar eftir að hafa fallið úr 2. deild síðasta sumar.
FRÉTTIR05.01.2024, 15:13
Tajon Buchanan hefur gengið í raðir Inter frá Club Brugge fyrir 7 milljónir evra.
FRÉTTIR05.01.2024, 15:00
Luke Williams hefur verið ráðinn nýr stjóri Swansea í Championship-deildinni á Englandi eftir langa þjálfaraleit.
FRÉTTIR05.01.2024, 13:45
Sheffield United hefur staðfest að félagið sé búið að krækja í sóknarmanninn Ben Brereton Díaz á láni frá Villarreal á Spáni.
FRÉTTIR05.01.2024, 09:40
Ingimar Torbjörnsson Stöle hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild KA og er nú samningsbundinn út sumarið 2025.
FRÉTTIR05.01.2024, 06:00
Zack Steffen er genginn til liðs við Colorado Rapids í MLS deildinni frá Manchester City. Hann gerir þriggja ára samning með möguleika á framlenginu um eitt ár til viðbótar.
FRÉTTIR05.01.2024, 06:00
<p>Eydís Arna Hallgrímsdóttir er alfarið gengin til liðs við Fram og skrifar undir tveggja ára samning. Hún hefur spilað í Fram treyjunni undanfarin tvö ár á láni frá FH.</p>
FRÉTTIR04.01.2024, 15:07
Anton Logi Lúðvíksson er formlega orðinn leikmaður Haugesund en hann hefur skrifað undir fjögurra ára samning við norska úrvalsdeildarfélagið. Hann er því aftur kominn undir stjórn Óskars Hrafns Þorvaldssonar sem þjálfaði hann hjá Breiðabliki.
Anton er annar Íslendingurinn sem Óskar fær til Haugesund en Hlynur Freyr Karlsson kom til félagsins frá Val nýlega.
FRÉTTIR04.01.2024, 14:04
Varnarmaðurinn Kristófer Reyes hefur samið við Krabi FC í Tælandi. Samningurinn gildir þangað til í vor.