Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25174 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR17.10.2023, 16:22

Mathias Rosenörn og Viktor Andri yfirgefa Keflavík (Staðfest)

Keflavík tilkynnti rétt í þessu að þeir Gunnlaugur Fannar Guðmundsson, Viktor Andri Hafþórsson og Mathias Rosenörn væru búnir að kveðja félagið. Keflavík féll úr Bestu deildinni í sumar og verður í Lengjudeildinni á næsta tímabili.

FRÉTTIR17.10.2023, 12:16

ÍA kaupir Hinrik Harðarson (Staðfest)

ÍA hefur tilkynnt um komu Hinriks Harðarsonar til félagsins. Hann átti frábært tímabil með Þrótti og kaupir ÍA hann af Lengjudeildarliðinu. Hinrik var orðaður við fleiri félög í haust en ÍA náði að krækja í sóknarmanninn sem skrifar undir samning út 2026. Hann er nítján ára og skoraði ellefu mörk í sumar.

FRÉTTIR16.10.2023, 13:03

Óskar Hrafn tekur við Haugesund (Staðfest)

Óskar Hrafn Þorvaldsson hefur verið tilkynntur sem nýr þjálfari norska félagsins Haugasunds. Frá þessu er greint á heimasíðu norska félagsins. Samningur Óskars gildir til ársins 2026 og hefur störf hjá félaginu 1. nóvember. Hann mun þó ekki taka við sem þjálfari liðsins fyrr en á næsta tímabili.

FRÉTTIR16.10.2023, 11:30

Ekroth telur að Víkingur myndi pluma sig vel í sænsku úrvalsdeildinni

Fyrir viku síðan tilkynntu Íslands- og bikarmeistarar Víkings að sænski varnarmaðurinn Oliver Ekroth hefði skrifað undir nýjan samning út tímabilið 2026. Ekroth er 31 árs og er algjör lykilmaður i liði Víkings.

09.10.2023 17:05
Oliver Ekroth hjá Víkingi til 2026 (Staðfest)

FRÉTTIR16.10.2023, 10:30

20 mest lesnu fréttir vikunnar - Handtökuskipun

Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar. Það er fjölbreytt blanda á lista vikunnar.

FRÉTTIR15.10.2023, 14:30

Chimbonda byrjar þjálfaraferilinn hjá Skelmersdale (Staðfest)

Franski bakvörðurinn Pascal Chimbonda gekk til liðs við Wigan Athletic í enska boltanum sumarið 2005 og vakti athygli á sér sem einn af bestu leikmönnum liðsins áður en hann skipti til Tottenham Hotspur og fór síðar til Sunderland, Blackburn Rovers og QPR meðal annars.

FRÉTTIR14.10.2023, 10:16

Theodór Elmar framlengir við KR (Staðfest)

Theodór Elmar Bjarnason hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við KR og er nú bundinn uppeldisfélagi sínu til 2025. Elmar er 36 ára miðjumaður sem lék 41 landsleik fyrir Ísland á landsliðsferli sínum og lék með liðinu á EM. Hann lék í atvinnumennsku 2004 til 2021 en þá kom hann aftur til KR. Samningamál hans hafa verið talsvert til umræðu síðustu mánuði en nú hefur hann bundið enda á allan vafa með því að skrifa undir. „Ég er fæddur og uppalinn hérna í Vesturbænum. Hér vil ég helst vera," sagði Elmar í upphafi mánaðarins. KR hafnaði í sjötta sæti Bestu deildarinnar á liðnu tímabili en ekki er enn ljóst hver verður þjálfari liðsins á næsta tímabili. Stjórn félagsins ákvað að endursemja ekki við Rúnar Kristinsson.

FRÉTTIR13.10.2023, 16:29

Óskar Örn ráðinn til Víkings (Staðfest)

Knattspyrnudeild Víkings hefur ráðið Óskar Örn Hauksson sem styrktarþjálfara meistaraflokk karla og tekur við keflinu af Guðjóni Erni Ingólfssyni sem fór til KR. Óskar er menntaður íþróttafræðingur frá HR og útskrifaður úr ÍAK styrktarþjálfunnám frá Keili.

FRÉTTIR12.10.2023, 17:00

Galtier tekur við Al-Duhail af Crespo (Staðfest)

Christophe Galtier hefur tekið við sem stjóri Al-Duhail í Katar af Hernan Crespo. Galtier vann franska meistaratitilinn með Paris St-Germain á síðasta tímabili en var skipt út í sumar fyrir Luis Enrique.

FRÉTTIR12.10.2023, 16:45

Andri Þór í Ægi (Staðfest)

Ægir hefur gengið frá tveggja ára samningi við Andra Þór Grétarsson sem kemur til félagsins frá KFK þar sem hann spilaði í sumar. Andri hefur glímt við erfið meiðsli en náði að spila talsvert í sumar. Andri lék fimmtán leiki með KFK og hjálpaði liðinu að komast upp í 3. deild og undanúrslit Fótbolti.net bikarsins.

FRÉTTIR11.10.2023, 17:00

Townsend samdi við Luton (Staðfest)

Andros Townsend fyrrum vængmaður Everton hefur skrifað undir samning við nýliða Luton Town en samningurinn gildir til janúar. Þessi 32 ára leikmaður var nálægt því að semja við Burnley í sumar en félagið dró tilboð sitt til baka þar sem það vildi ekki hindra spilmínútur ungra leikmanna.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.