FRÉTTIR11.10.2023, 17:00
Andros Townsend fyrrum vængmaður Everton hefur skrifað undir samning við nýliða Luton Town en samningurinn gildir til janúar.
Þessi 32 ára leikmaður var nálægt því að semja við Burnley í sumar en félagið dró tilboð sitt til baka þar sem það vildi ekki hindra spilmínútur ungra leikmanna.
FRÉTTIR11.10.2023, 15:44
Miðjumaðurinn Marko Vardic hefur skrifað undir tveggja ára samning við ÍA, sem gildir út leiktíðina 2025.
Vardic er 28 ára Slóveni sem getur einnig spilað í miðverði.
Hann spilaði 30 leiki fyrir Grindavík síðasta tímabil og skoraði fjögur mörk. Hann var kjörinn besti leikmaður Grindavíkur síðasta tímabil.
FRÉTTIR11.10.2023, 13:00
Gonzalo Zamorano, sem er samningsbundinn Selfossi, hefur verið lánaður til CD El Alamo á Spáni.
Sóknarmaðurinn er uppalinn hjá félaginu sem staðsett er í Madríd og er með lið í fjórðu deild.
FRÉTTIR11.10.2023, 10:10
Birmingham City hefur ráðið Wayne Rooney, fyrrum sóknarmann Manchester United og Englands, sem nýjan stjóra félagsins.
Birmingham hefur verið að gera góða hluti í Championship-deildinni og er í sjötta sæti. John Eustace var hinsvegar rekinn, af þeirri einu ástæðu að forráðamenn félagsins vildu fá inn stjörnu til að vera andlit félagsins.
FRÉTTIR11.10.2023, 06:00

Diego Alonso hefur verið ráðinn nýr stjóri Sevilla eftir að Jose Luis Mendilibar á dögunum.

FRÉTTIR10.10.2023, 23:00

Filippo Inzaghi hefur verið ráðinn stjóri ítalska liðsins Salernitana.

FRÉTTIR10.10.2023, 17:00
Í morgun tilkynnti belgíski töframaðurinn Eden Hazard að hann væri búinn að leggja skóna á hilluna. Hazard er 32 ára framsækinn leikmaður sem gat gert eiginlega allt með boltann. Hann var um nokkurra ára skeið einn allra besti, ef ekki hreinlega besti, leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar.
Hér að neðan má sjá vinsælar færslur af X í dag þar sem einhver augnablik eða tölfræði er tekin fyrir. Til hliðar má sjá valdar myndir af Hazard.
FRÉTTIR10.10.2023, 10:25
Eden Hazard hefur tilkynnt að hann hefur lagt skóna á hilluna eftir að hafa yfirgefið Real Madrid eftir síðasta tímabil.
Hazard er 32 ára og gekk í raðir Real frá Chelsea árið 2019 fyrir 89 milljónir punda en lék aðeins 54 deildarleiki fyrir spænsku risana.
FRÉTTIR09.10.2023, 23:00
Enskir fjölmiðlar eru sammála um að Wayne Rooney sé að taka við hjá Birmingham City, sem leikur í Championship deildinni þar í landi.
FRÉTTIR09.10.2023, 22:00
Tottenham hefur staðfest ráðningu á Johan Lange sem tæknilegum stjóra félagsins. Lange mun hefja störf eftir næstu mánaðamót en hann hefur verið hjá Aston Villa undanfarin ár.
FRÉTTIR09.10.2023, 18:00
Tilkynnt var um þriggja ára framlengingu á samningi Oliver Ekroth við Víking í dag. Samningurinn hans var að renna út en hann komst að samkomulagi við félagið um framlengingu.
Í frétt á heimasíðu Víkings tjáðu þeir Oliver, Arnar Gunnlaugsson og Kári Árnason sig um tíðindin.
FRÉTTIR09.10.2023, 17:13
Björn Sigurbjörnsson, sem þjálfað hefur meistaraflokk kvenna á Selfossi undanfarin tvö tímabil, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið. Frá þessu var greint á samfélagsmiðlum félagsins í dag.
Á fyrsta tímabili Björns hafnaði liðið í 5. sæti Bestu deildarinnar en liðið féll síðan úr deildinni í sumar eftir að hafa verið spáð 6. sætinu í spá Fótbolta.net fyrir tímabilið.
Björn hefur mikla þjálfarareynslu en hann var aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Kristianstads í Svíþjóð tíu ár og tók þátt í uppbyggingu yngri flokka starfs félagsins frá árinu 2015. Áður en hann hélt erlendis hafði hann verið aðstoðarþjálfari bæði hjá karla- og kvennaliðum Víkings og þjálfað yngri flokka hjá Víkingi, Þrótti R, Fram og Val.
FRÉTTIR09.10.2023, 17:05
Víkingar tilkynntu á samfélagsmiðlum sínum rétt í þessu að Oliver Ekroth hefði skrifað undir þriggja ára framlengingu á samningi sínum við félagið, gildir samningurinn út 2026.
Sænski miðvörðurinn hefur verið algjör lykilmaður frá komu sinni til Víkings fyrir tímabilið 2022 og í sumar var hann einn allra besti varnarmaður deildarinnar og í liði ársins hér á Fótbolti.net.
FRÉTTIR09.10.2023, 16:54
Úlfur Arnar Jökulsson, þjálfari Fjölnis, verður áfram með liðið. Þetta staðfesti Björgvin Jón Bjarnason, formaður knattspyrnudeildar Fjölnis, í samtali við Fótbolta.net í dag.
Úlfur hefur verið þjálfari Fjölnis undanfarin tvö ár, tímabilið 2022 endaði Fjölnir í 4. sæti og í ár endaði liðið í 3. sæti. Liðið tapaði í undanúrslitum úrslitakeppninnar fyrir Vestra sem endaði á því að vinna úrslitakeppnina og tryggði sér með því sæti í Bestu deildinni.
FRÉTTIR09.10.2023, 16:09
Dofri Snorrason hefur lagt skóna á hilluna eftir þrettán tímabil í meistaraflokki. Frá þessu var fyrst greint í íslenska slúðurpakkanum og Dofri staðfesti tíðindin í dag við fréttamann Fótbolta.net.
Dofri varð 33 ára í sumar og hefur á sínum ferli leikið með KR, Víkingi, Selfossi og síðast Fjölni á sínum ferli.
FRÉTTIR09.10.2023, 15:32
Stjarnan hefur gengið frá samningi við framherjann Örvar Eggertsson en hann kemur til félagsins frá HK.
FRÉTTIR09.10.2023, 13:23
Flosi Eiríksson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks, vildi ekkert tjá sig þegar 433.is spurði hann út í uppákomu sem sögð er hafa átt sér stað í kvöldverði hjá leikmönnum, stjórn og starfsfólki Breiðabliks í gær.
FRÉTTIR09.10.2023, 13:22
Finnarnir Eetu Mömmö og Dani Hatakka verða ekki áfram í herbúðum FH á næstu leiktíð.
Þetta staðfestir Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH, í samtali við Fótbolta.net í dag.
FRÉTTIR09.10.2023, 10:14
Birmingham hefur tekið ákvörðun um að reka þjálfarann John Eustace úr starfi þrátt fyrir flottan byrjun á tímabilinu.
FRÉTTIR08.10.2023, 19:15

Jarrod Bowen hefur skrifað undir nýjan langtímasamning við West Ham. Hann var á samning hjá liðinu til ársins 2025 en hefur framlengt hann til ársins 2030.