Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25177 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR18.08.2023, 17:00

Gustavo Scarpa lánaður til Olympiakos (Staðfest)

Nottingham Forest hefur tilkynnt að Gustavo Scarpa hefur gengið í raðir Olympiakos á lánssamningi út tímabilið. Þessi 29 ára brasilíski miðjumaður spilaði 10 leiki fyrir Forest á síðasta tímabili, eftir að hafa gengið í raðir félagsins frá Palmeiras í janúar. Það eru hæg heimatökin í þessum félagaskiptum til Olympiakos því eigandi félagsins Evangelos Marinakis er einnig eigandi Forest.

FRÉTTIR18.08.2023, 13:40

Rúnar Alex í Cardiff (Staðfest)

Landsliðsmarkvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson er búinn að fá félagaskipti yfir til Cardiff. Cardiff fær Rúnar Alex á láni frá Arsenal út yfirstandandi tímabil.

FRÉTTIR18.08.2023, 11:38

Wataru Endo í Liverpool (Staðfest)

Liverpool hefur staðfest kaupin á japanska miðjumanninum Wataru Endo frá Stuttgart. Hann kemur til Liverpool fyrir 16,2 milljónir punda og skrifar undir fjögurra ára samning. Endo fær treyju númer 3 hjá Liverpool.

FRÉTTIR18.08.2023, 10:36

Alfreð Finnboga til Eupen (Staðfest)

Danska úrvalsdeildarfélagið Lyngby hefur staðfest að félagið sé búið að selja íslenska sóknarmanninn Alfreð Finnbogason til Eupen í Belgíu. Alfreð skrifar undir tveggja ára samning í Belgíu en sagt er að kaupverðið sé um 38,6 milljónir íslenskra króna.

FRÉTTIR18.08.2023, 09:14

Romeo Lavia í Chelsea (Staðfest)

Miðjumaðurinn efnilegi Romeo Lavia er búinn að skrifa undir samning við Chelsea og hefur formlega verið kynntur sem leikmaður félagsins.

FRÉTTIR17.08.2023, 22:30

Bono til Al-Hilal (Staðfest)

Al-Hilal tilkynnti í kvöld kaupin á Marokkómanninum Yassine Bounou en hann kemur frá Sevilla á Spáni.

FRÉTTIR17.08.2023, 14:22

Hodgson: Í dag er hátíðardagur fyrir félagið

<i>„Þetta eru bestu mögulegu fréttir sem félagið gat fengið. Það er hátíðardagur,"</i> segir Roy Hodgson, stjóri Crystal Palace, um Michael Olise sem skrifaði í morgun undir nýjan samning við Crystal Palace. Búist var við því að Olise, sem er 21 árs, myndi fara til Chelsea sem hafði virkjað riftunarákvæði upp á 35 milljónir punda. Olise hafnaði hinsvegar Chelsea og heldur tryggð við Palace. <b>Sjá einnig:</b> <a href="https://www.fotbolti.net/news/17-08-2023/olise-hafnadi-chelsea-og-gerdi-nyjan-samning-vid-palace-stadfest" target="_blank">Olise hafnaði Chelsea og gerði nýjan samning við Palace (Staðfest)</a>

FRÉTTIR17.08.2023, 12:29

Olise hafnaði Chelsea og gerði nýjan samning við Palace (Staðfest)

Michael Olise vængmaður Crystal Palace hefur skrifað undir nýjan samning við félagið. Steve Parish stjórnarformaður félagsins greindi frá þessu á Instagram. Búist var við því að Olise myndi fara til Chelsea sem hafði virkjað riftunarákvæði upp á 35 milljónir punda. Olise hafnaði hinsvegar Chelsea og heldur tryggð við Palace.

FRÉTTIR17.08.2023, 11:10

Miðjumaðurinn Kevin Bru í ÍBV (Staðfest)

ÍBV hefur fengið til sín miðjumanninn Kevin Bru en hann er 34 ára, fæddur og uppalinn í Frakklandi en á 21 landsleik fyrir eyríkið Máritíus á Indlandshafi. Foreldrar hans eru þaðan. Hann kom upp úr unglingastarfi Rennes en hefur víða komið við í franska boltanum, meðal annars hjá Dijon. Á árunum 2014-2018 lék hann fyrir Ipswich Town á Englandi og spilaði í Championship-deildinni. Auk þess hefur hann spilað á Kýpur og í Rúmeníu. Síðustu ár hefur hann leikið í frönsku neðri deildunum, síðast fyrir C'Chartres sem er í sjöttu efstu deild.

FRÉTTIR17.08.2023, 09:54

Tim Krul til Luton (Staðfest)

Nýliðar Luton í ensku úrvalsdeildinni hafa samið við markvörðinn reynslumikla Tim Krul. Þessi 35 ára Hollendingur yfirgefur Norwich eftir fimm ára veru hjá félaginu. Krul hefur leikið fimmtán landsleiki fyrir Holland og segist spenntur fyrir því að taka þátt í því ævintýri sem sé í gangi hjá Luton.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.