Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25178 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR03.08.2023, 19:16

Markvarðarleit Luton lokið (Staðfest)

Luton Town er komið með markvörð fyrir komandi tímabil í ensku úrvalsdeildinni en belgíski leikmaðurinn Thomas Kaminski er kominn frá Blackburn Rovers.

FRÉTTIR03.08.2023, 18:09

Siggi Raggi hættir hjá Keflavík eftir tímabilið (Staðfest)

<a href="https://www.fotbolti.net/news/03-08-2023/siggi-raggi-buinn-ad-akveda-ad-haetta-eftir-timabilid" target="_blank">Í kjölfar fréttar hér á Fótbolti.net</a> þar sem því var velt upp hvort Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Keflavíkur, hefði ákveðið að hætta sem þjálfari liðsins í lok tímabilsins, hefur félagið, ásamt Sigga Ragga sjálfum, sent út sameiginlega yfirlýsingu. Þar segir að samstarfi Keflavíkur og Sigga Ragga muni ljúka í október næstkomandi að loknu tímabilinu í Bestu deildinni. Tekið er fram að báðir aðilar hafi komist að samkomulagi um að best sé að leiðir skilji og að ákvörðunin sé tekin með vinsemd og virðingu beggja aðila fyrir hvorum öðrum. Siggi Raggi hefur verið þjálfari liðsins í fjögur ár og undir hans stjórn endaði liðið í 7. sæti Bestu deildarinnar á síðasta ári sem var besti árangur liðsins í tólf ár. Keflavík er í botnsæti Bestu deildarinnar þegar tíu umferðir eru eftir og eru sex stig upp í öruggt sæti. Liðið hefur ekki unnið leik síðan í fyrstu umferð sem fór fram á öðrum degi páska.

FRÉTTIR03.08.2023, 17:00

Sheffield United kaupir varnarmann frá Arsenal (Staðfest)

Sheffield United hefur keypt varnarmanninn Auston Trusty frá Arsenal, þessi 24 ára bandaríski landsliðsmaður var hjá Birmingham City á lánssamningi á síðasta tímabili þar sem hann var valinn leikmaður ársins.

FRÉTTIR03.08.2023, 13:30

Bishop frá Man Utd til Sunderland (Staðfest) - Bruno kveður með smá skoti

Sunderland tilkynnti í gær um komu Nathan Bishop frá Manchester United. Kaupverðið er óuppgefið. Nathan Bishop er 23 ára enskur markvörður sem gekk í raðir Man Utd árið 2020. Hann lék ekki keppnisleik með United en var fjórum sinnum á bekknum á síðasta tímabili. Sunderland er í ensku Championship deildinni.

FRÉTTIR03.08.2023, 10:10

Lanzini og Moura komnir heim til Suður-Ameríku (Staðfest)

Manuel Lanzini og Lucas Moura, fyrrum leikmenn í ensku úrvalsdeildini, hafa samið við sín fyrrum félög í Suður-Ameríku. Argentínski miðjumaðurinn Lanzini og brasilíski vængmaðurinn Moura yfirgáfu West Ham og Tottenham í sumar. Báðir eru 30 ára gamlir.

FRÉTTIR02.08.2023, 16:37

Þorri Stefán til Lyngby (Staðfest)

Þorri Stefán Þorbjörnsson er genginn í raðir danska félagsins Lyngby. Á þessu vakti umboðsmaður hans, Halldór Ragnar Emilsson, athygli á Instagram reikningi sínum í dag. Lyngby kaupir Þorra frá FH þar sem hann hefur verið í eitt og hálft ár en hann kom til FH frá Fram. Hann lék sinn fyrsta og keppnisleik með FH gegn einmitt Fram í júní.

FRÉTTIR02.08.2023, 07:00

Salisu til liðs við Monaco (Staðfest)

Varnarmaðurinn Mohammed Salisu er genginn til liðs við Monaco frá Southampton. Þessi 24 ára gamli Ganverji gerir fimm ára samning við félagið.

FRÉTTIR02.08.2023, 06:00

Fram fær Ólínu og Telmu (Staðfest)

<p>Fram hefur nælt í tvo nýja leikmenn til að styrkja hópinn fyrir endasprettinn í Lengjudeild kvenna sem framundan er.</p>

FRÉTTIR01.08.2023, 18:20

Mane til Al-Nassr (Staðfest)

<p>Sadio Mane er genginn til liðs við Al-Nassr í Sádí-Arabíu frá Bayern Munchen.&nbsp;</p>

FRÉTTIR01.08.2023, 17:30

Jack Colback í QPR (Staðfest)

QPR í ensku Championship deildinni hefur krækt í miðjumanninn Jack Colback. Colback kemur á frjálsri sölu en hann fékk ekki áframhaldandi samning hjá Nottingham Forest í sumar.

FRÉTTIR01.08.2023, 15:31

Brynjar Björn tekur við Grindavík (Staðfest)

Grindavík hefur staðfest það að Brynjar Björn Gunnarsson sé tekinn við þjálfun karlaliðs félagsins af Helga Sigurðssyni sem sagði starfi sínu lausu í gær. Brynjar Björn skrifar undir samning við Grindavík sem gildir út næsta tímabil. Hann mun stýra liðinu gegn Vestra á morgun.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.