Þróttur nær í varnarmann frá Bandaríkjunum (Staðfest)
Þróttur Reykjavík hefur fengið frá samkomulagi við bandaríska varnarmanninn Mikenna McManus um að spila með liðinu í sumar.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25197 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Þróttur Reykjavík hefur fengið frá samkomulagi við bandaríska varnarmanninn Mikenna McManus um að spila með liðinu í sumar.
Breiðablik hefur gengið frá samningi við varnarmann frá Bandaríkjunum sem er með gríðarlega flotta ferilskrá. Hún heitir Toni Pressley og er 33 ára gömul. Hún spilaði síðast með Orlando Pride og var þar samherji Gunnhildar Yrsu Jónsdóttur um nokkurt skeið.

KFA hefur nælt í argentískan miðvörð að nafni Ivan Moran. Þessi þrítugi miðvörður er uppalinn hjá Boca Juniors. Hann gerir samning út tímabilið.

Karen María Sigurgeirsdóttir er mætt heim í Þór/KA eftir að hafa leikið með Breiðabliki frá 2021. Hún kemur til félagsins á láni út næstu leiktíð.
Corinne Diacre hefur verið rekin sem þjálfari franska kvennalandsliðsins, aðeins fjórum mánuðum fyrir HM. Diacre er látin fara eftir að margir lykilmenn liðsins, þar á meðal fyrirliðinn Wendie Renard, sögðust ekki ætla að spila fyrir landsliðið undir hennar stjórn. Franska fótboltasambandið hefur nú rekið Diacre og sagt að ekki hafi verið annað hægt í ljósi stöðunnar.

KF er búið að klófesta nýjan leikmann fyrir átök komandi tímabils í 2. deildinni.

PSV Eindhoven hefur komist að samkomulagi við Galatasaray um félagsskipti vinstri bakvarðarins Patrick van Aanholt.

Víðir í Garði er búið að krækja í spænska miðjumanninn Sasha Litwin og mun hann spila með félaginu í sumar. Hann þekkir vel til í Garðinum því hann spilaði þar sumarið 2021 og skoraði þá eitt mark í ellefu leikjum.
Belgíska félagið Club Brugge hefur tilkynnt að Scott Parker sé ekki lengur þjálfari liðsins. Kornið sem fyllti mælinn var 5-1 tap gegn Benfica á útivelli í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær. Einvígið fór 7-1 samanlagt. Parker entist einungis tólf leiki í starfi hjá félaginu, vann tvo deildarleiki, gerði sex jafntefli, tapaði tveimur deildarleikjum og báðum leikjunum gegn Benfica.

Víðir Garði hefur tilkynnt komu spænska miðjumannsins Dani Benéitez sem mun leika með félaginu í sumar.

Knattspyrnufélag Austfjarða heldur áfram að bæta við sig leikmönnum fyrir komandi tímabil í 2. deild karla. KFA rétt slapp við fall í fyrra, með 19 stig úr 22 umferðum.

Championship félag Watford er búið að reka Slaven Bilic eftir tæpa sex mánuði í þjálfarastarfinu og hefur Chris Wilder verið ráðinn inn í staðinn.

Nicky Evrard, landsliðsmarkvörður Belgíu, hefur gert samkomulag við Chelsea um að ganga í raðir félagsins í sumar en félagaskiptin voru tilkynnt í gær.
Haukar hafa styrkt sig fyrir komandi tímabil en Ana Bral er komin til félagsins frá Fram.
Akil DeFreitas er genginn til liðs við KF frá Reyni Sandgerði en þetta kom fram í tilkynningu KF í gær.
Varnarmaðurinn Samúel Már Kristinsson hefur fengið félagaskipti úr KV í Fjölni. Samúel er 22 ára og er uppalinn KR-ingur. Hann er í námi í Bandaríkjunum og spilar fyrir Old Dominion í háskólaboltanum.
Sjúkraþjálfarinn Friðrik Ellert Jónsson hefur verið ráðinn til starfa hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Nottingham Forest.
Vopnfirðingurinn, Heiðar Snær Ragnarsson, er mættur aftur til KFA frá Njarðvík en þetta kom fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
Vestri tilkynnti í kvöld nýjan leikmann en félagið hefur gengið frá samningum við senegalska miðjumanninn Ibrahima Balde.
Bergdís Fanney Einarsdóttir er gengin í raðir Fylkis frá KR en hún skrifaði undir samning til 2024. Knattspyrnudeild Fylkis tilkynnti þetta í dag.