Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25202 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR31.01.2023, 14:32

Terem Moffi til Nice (Staðfest)

Terem Moffi er genginn í raðir Nice frá Lorient. Moffi er 23 ára nígerískur framherji sem var orðaður við bæði Southampton og West Ham í glugganum. Moffi kemur á láni frá Lorient út tímabilið en Nice þarf svo að kaupa hann alfarið í sumar. Alls kostar hann um 25 milljónir punda.

FRÉTTIR31.01.2023, 14:15

Soonsup-Bell frá Chelsea til Tottenham (Staðfest)

Tottenham krækti í dag í leikmann, á gluggadeginum sjálfum. Sá heitir Jude Soonsup-Bell og kemur frá Chelsea. Hann mun fara í akademíuliðið hjá Spurs. Soonsup-Bell er nítján ára sóknarmaður og skrifar undir samning sem gildir fram á sumarið 2025.

FRÉTTIR31.01.2023, 13:08

Christian Köhler í dönsku B-deildina (Staðfest)

Miðjumaðurinn Christian Köhler, sem lék með ÍA á síðasta tímabili, er genginn í raðir Fremad Amager í Danmörku. Danski miðjumaðurinn kom til Íslands fyrir tímabilið 2021 og lék þá með Val. Fyrir tímabilið 2022 skipti hann svo yfir í ÍA þar sem hann lék í fyrra.

FRÉTTIR31.01.2023, 12:31

Valur fær Hönnu Kallmaier frá ÍBV (Staðfest)

Valur tilkynnti í dag að Hanna Kallmaier væri búin að skrifa undir samning við félagið út komandi tímabil í Bestu deild kvenna. Hanna er þýsk og kemur til Vals frá ÍBV þar sem hún hefur spilað þrjú síðustu tímabil.

FRÉTTIR31.01.2023, 11:40

Þór fær varafyrirliða Öster (Staðfest)

Þórsarar tilkynntu í dag að samkomulag væri í höfn um að Marc Rochester Sörensen væri genginn í raðir félagsins. Hann mun leika með liðinu á komandi tímabili í Lengjudeildinni. Marc er þrítugur miðjumaður og hefur á sínum ferli leikið 99 leiki í dönsku úrvalsdeildinni, flesta með Silkeborg.

FRÉTTIR31.01.2023, 11:35

Cancelo frá Man City til Bayern München (Staðfest)

Það er staðfest. Portúgalski bakvörðurinn Joao Cancelo hefur gengið í raðir Bayern München frá Manchester City. Hann fer til Bayern á lánssamningi en Þýskalandsmeistararnir eru með ákvæði um að geta keypt hann á 61,5 milljónir punda næsta sumar. Spiltími þessa 28 ára leikmanns hafði farið minnkandi hjá City og fjallað var um ósætti milli hans og Pep Guardiola, stjóra City.

FRÉTTIR31.01.2023, 11:00

Sunderland kaupir Anderson frá Everton (Staðfest)

Sunderland hefur gengið frá kaupum á Joe Anderson frá Everton, kaupverðið er óuppgefið. Anderson er 21 árs miðvörður sem kemur úr U21 liði Everton þar sem hann hefur verið fyrirliði í nokkrum leikjum á tímabilinu.

FRÉTTIR31.01.2023, 10:09

Newcastle kaupir Ashby (Staðfest)

Newcastle hefur gengið frá kaupum á Harrison Ashby frá West Ham. Ashby er 21 árs hægri bakvörður sem var að verða samningslaus hjá West Ham næsta sumar. Hann hafði tjáð félaginu að hann ætlaði ekki að gera nýjan samning og samþykkti West Ham þriggja milljóna punda tilboð í leikmanninn.

FRÉTTIR31.01.2023, 09:20

Arsenal lánar Marquinhos til Norwich (Staðfest)

Hinn nítján ára gamli sóknarleikmaður Marquinhos hefur gengið í raðir Norwich í Championship-deildinni á lánssamningi frá Arsenal út tímabilið. Hann hefur spilað sex aðalliðsleiki fyrir Arsenal á þessu tímabili.

FRÉTTIR31.01.2023, 09:10

Hinn átján ára gamli Monteiro til Leeds (Staðfest)

Hinn átján ára gamli miðvörður Diogo Monteiro hefur gengið í raðir Leeds United frá Servette í Sviss. Monteiro lék sinn fyrsta deildarleik fyrir Servette þegar hann var sextán ára og varð þriðji yngsti leikmaðurinn til að spila í svissnesku úrvalsdeildinni.

FRÉTTIR31.01.2023, 07:50

Gluggadagvaktin - Tíðindi og slúður

Fótbolti.net fylgist með öllu því helsta sem gerist á gluggadeginum í beinni textalýsingu. Glugganum verður lokað klukkan 23:00 í ensku úrvalsdeildinni. Smelltu hér til að fara í kvöldvaktina Hér koma inn allar helstu slúðursögurnar sem eru í gangi, staðfestar fréttir og ýmsar vangaveltur. Það er Domino's sem færir þér Gluggavaktina á Fótbolta.net. Það allra helsta á gluggadeginum: Man Utd reynir við Sabitzer vegna meiðsla Eriksen Cancelo frá Man City til Bayern (Staðfest) Arsenal kaupir Jorginho Slúðurpakkinn á Gluggadegi

FRÉTTIR31.01.2023, 07:20

Sevilla fær Pape Gueye frá Marseille (Staðfest)

Sevilla er búið að tryggja sér senegalska miðjumanninn Pape Gueye á lánssamningi frá Marseille sem gildir út tímabilið. Það er enginn kaupmöguleiki sem fylgir en Gueye er samningsbundinn Marseille til 2024.

FRÉTTIR30.01.2023, 22:40

Matias Vina til Bournemouth (Staðfest)

Úrúgvæski landsliðsbakvörðurinn Matias Vina er orðinn leikmaður Bournemouth á sex mánaða lánssamningi frá AS Roma.

FRÉTTIR30.01.2023, 21:30

Grindavík fær Mo frá Fjölni (Staðfest)

Grindavík er búið að klófesta Momola Adesanmi sem var einn af fáum björtu punktum á slæmu tímabili Fjölnis í Lengjudeildinni í fyrra.

FRÉTTIR30.01.2023, 20:28

McKennie til Leeds (Staðfest)

Leeds United er búið að staðfesta félagsskipti Weston McKennie á lánssamningi frá Juventus sem gildir út tímabilið.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.