Juranovic semur við Union (Staðfest)
Króatíski landsliðsbakvörðurinn Josip Juranovic er genginn til liðs við Union Berlín í Þýskalandi en hann kemur frá skoska stórveldinu Celtic.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25204 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Króatíski landsliðsbakvörðurinn Josip Juranovic er genginn til liðs við Union Berlín í Þýskalandi en hann kemur frá skoska stórveldinu Celtic.
Kínverska landsliðskonan Linli Tu skrifaði í dag undir tveggja ára samning við Keflavík en hún kemur til félagsins frá Fjarðabyggð/Hetti/Leikni.
Enski varnarmaðurinn Craig Dawson gekk í dag til liðs við Wolves frá West Ham fyrir 3,3 milljónir punda.
Íslenska landsliðskonan Elísa Viðarsdóttir framlengdi í gær samning sinn við Val til næstu tveggja ára.
Youssoufa Moukoko framlengdi í gær samning sinn við Borussia Dortmund til 2026.
Enska B-deildarfélagið Burnley hefur fest kaup á sænska varnarmanninum Hjalmar Ekdal frá Djurgården en kaupverðið er ekki gefið upp.
<p>Arnar Daníel Aðalsteinsson hefur gengið til liðs við Gróttu frá Breiðablik en leikmaðurinn var á láni hjá Gróttu í Lengjudeildinni á síðustu leiktíð.</p>
<p>Ólafur Örn Eyjólfsson er búinn að ganga til liðs við Þrótt Vogum en hann kemur til liðsins frá HK.</p>
Dalvík/Reynir hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í 2. deild því markvörðurinn Auðunn Ingi Valtýsson er kominn til félagsins á láni frá Þórsurum. Lánssamningurinn gildir út komandi tímabil. Þorlákur Árnason, þjálfari Þórs, sagði í vetur að Auðunn færi líki líklega á lán á komandi tímabili og eftir komu Ómars Castaldo Einarssonar í Þór var það orðið næsta víst.
Mosfellingurinn, Bjarki Steinn Bjarkason, skrifaði í dag undir lánssamning við Foggia í ítölsku C-deildinni en hann kemur til félagsins frá Venezia.
Noni Madueke er nú formlega genginn í raðir Chelsea frá PSV Eindhoven.
Haraldur Árni Hróðmarsson er nýr aðstoðarþjálfari ÍA en þetta kemur fram í tilkynningu frá Skagamönnum í dag.
Leicester City hefur gengið frá kaupum á danska varnarmanninum Victor Kristiansen frá danska meistaraliðinu FCK. Þetta kemur fram í tilkynningu frá FCK.
Spænski markvörðurinn Vicente Guaita mun spila með Crystal Palace út næsta tímabil en hann skrifaði undir eins árs framlengingu á samningi sínum í dag.
Linda Líf Boama er gengin í raðir Víkings og hefur skrifað undir samning sem gildir út tímabilið 2024. Á heimasíðu Víkings er talað um að Linda sé komin heim. Linda þekkir vel til í Víkinni því hún var þar á árunum 2014-2019, kom frá ÍR og fór svo í Þrótt þar sem hún hefur verið undanfarin ár.
KR hefur krækt í Luke Rae frá grönnum sínum í Gróttu, þetta kemur fram í tilkynningu félagsins í dag. KR kaupir Luke sem hefur skrifað undir þriggja ára samning í Vesturbænum. Luke er 22 ára sóknarmaður sem hefur spilað á Íslandi síðastliðin þrjú ár. Hann kom fyrst á Sauðárkrók árið 2020, lék með Vestra tímabilið 2021 og í fyrra mð Gróttu. Luke skoraði níu mörk og lagði upp fimmtán í 23 leikjum með Gróttu á síðasta tímabili.
Leandro Trossard er formlega orðinn leikmaður Arsenal, toppliðs ensku úrvalsdeildarinnar. Belgíski landsliðsmaðurinn er keyptur frá Brighton og gerir langrímasamning við Arsenal. Hann verður í treyju númer 19 á Emirates vellinum.
Nottingham Forest hefur fengið Chris Wood á láni frá Newcastle út yfirstandandi tímabil. Ákvæði er í lánssamningnum og ef það virkjast skuldbindir Forest sig til að kaupa leikmanninn og semja við hann fram á sumarið 2024. Nýsjálendingurinn verður í treyju númer 39 hjá Forest. Wood má spila með Forest gegn Bournemouth á morgun.
West Ham hefur keypt sóknarmanninn Danny Ings frá Aston Villa á 15 milljónir punda. Kaupverðið er reyndar 12 milljónir en hækkar upp í 15 ef West Ham nær að halda sér í deild þeirra bestu. Ings er þrítugur og ætti að vera kominn með leikheimild fyrir fallbaráttuslaginn gegn Everton á morgun. Ings gerði samning til 2025 en hann var hjá Villa í 18 mánuði, eftir að hafa verið keyptur á 25 milljónir punda í ágúst 2021. <i>„Ég er afskaplega spenntur. Það er mikilvægt að ég aðlagist sem fyrst til að geta verið mikilvægur í þeirri baráttu sem West Ham er í. Ég mun reyna að skora eins mörg mörk og ég get til að aðstoða liðið að ná jákvæðum úrslitum,"</i> segir Ings.
Atletico Madrid hefur fengið öflugan liðsstyrk fyrir baráttuna seinni hluta tímabilsins á Spáni. Memphis Depay hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við Atletico. Kaupverðið er talið vera um þrjár milljónir evra. Hann er keyptur frá Barcelona og verður kynntur fyrir stuðningsmönnum á Metropolitano leikvanginum klukkan 18:00 í kvöld.