Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 01. janúar 2023 16:10
Brynjar Ingi Erluson
Lloris kominn fram yfir síðasta söludag
Hugo Lloris
Hugo Lloris
Mynd: EPA
Hugo Lloris, markvörður Tottenham Hotspur, kostaði liðið mark í 2-0 tapinu gegn Aston Villa í dag en Graeme Souness, sparkspekingur á Sky Sports, segir að nú sé kominn tími til að losa sig við hann.

Aston Villa komst yfir í byrjun síðari hálfleiks með marki frá Emi Buendia.

Douglas Luiz átti skot af löngu færi sem Lloris varði klaufalega út í teiginn og gaf þar Ollie Watkins tækifæri á að skapa hættu, sem og hann gerði. Hann fann Buendia í miðjum teignum og kom argentínski leikmaðurinn liði Villa yfir.

Lloris hefur verið óstöðugur í marki Tottenham og kostað liðið nokkur mörk á þessu tímabili en Souness segist ekki mikill aðdáandi Frakkans.

„Ég er ekki mikill aðdáandi Lloris. Frá byrjun tímabilsins hefur hann gert fjögur mistök sem hafa leitt beint að marki. Það er versta tölfræðin af öllum markvörðunum. Hann er kominn fram yfir síðasta söludag,“ sagði Souness.
Athugasemdir
banner
banner
banner