Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 01. febrúar 2023 19:07
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Man Utd og Nottingham Forest: De Gea á bekknum
Tom Heaton er í marki United
Tom Heaton er í marki United
Mynd: EPA
Manchester United og Nottingham Forest mætast í seinni undanúrslitaleik liðanna í enska deildabikarnum á Old Trafford klukkan 20:00 í kvöld.

Tom Heaton er í marki United en David De Gea tekur sér sæti á bekknum. Þetta er annar byrjunarliðsleikur Heaton fyrir Man Utd en hann spilaði einnig í sigri liðsins á Charlton í keppninni.

Alejandro Garnacho er þá einnig í byrjunarliði heimamanna og þeir Lisandro Martínez og Raphael Varane standa vaktina í miðri vörn.

Marcel Sabitzer, sem kom til félagsins á láni frá Bayern München, seint í gær er ekki í hópnum. Keylor Navas er þá ekki í hópnum hjá Nottingham Forest.

Manchester United: Heaton; Wan-Bissaka, Varane, Martinez, Shaw; Fred, Casemiro; Antony, Fernandes, Garnacho; Weghorst.

Nottingham Forest: Hennessey; Williams, McKenna, Boly, Renan Lodi; Mangala, Lingard, Freuler; Scarpa; Johnson, Surridge.
Athugasemdir
banner
banner
banner