Everton og Southampton eigast við í ensku úrvalsdeildinni klukkan 20:00 í kvöld en leikurinn fer fram á Goodison Park. Gylfi Þór er fyrirliði Everton í kvöld.
Gylfi Þór Sigurðsson er fyrirliði í dag í fjarveru Seamus Coleman en Gylfi byrjaði á bekknum í síðasta deildarleik gegn Liverpool en kom inná og skoraði úr vítaspyrnu.
James Rodriguez er fjarri góðu gamni en Allan og Dominic Calvert-Lewin byrja báðir.
Fraser Forster er í marki Southampton en hann hefur ekki enn fengið á sig mark í þeim fjórum leikjum sem hann hefur spilað í öllum keppnum með liðinu á tímabilinu.
Everton: Pickford, Godfrey, Holgate, Digne, Keane, Allan, Gomes, Doucoure, Sigurdsson, Richarlison, Calvert-Lewin
Southampton: Forster, Bertrand, Salisu, Bednarek, Vestergaard, Ward-Prowse, Djenepo, Armstrong, Redmond, Adams, Ings
Athugasemdir