Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 01. maí 2020 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Bale opinn fyrir MLS - Elskar að spila golf í Los Angeles
Mynd: Getty Images
Gareth Bale, kantmaður Real Madrid, á tvö ár eftir af samningi sínum við félagið. Litlar sem engar líkur eru á að velska stórstjarnan framlengi samninginn og gæti hann því skipt um félag á frjálsri sölu sumarið 2022, þegar hann verður 33 ára gamall.

Bale var spurður hvort hann hefði áhuga á að spila í MLS deildinni á lokakafla ferilsins og sagðist hann vera opinn fyrir því.

„MLS? Það er deild sem stækkar hratt. Það eru margir leikmenn sem vilja spila í MLS og ég hef klárlega áhuga á því," sagði Bale.

„Ég elska að fara í frí til Los Angeles. Ég spila mikið golf þar."

Bale hefur skorað 105 mörk í 249 leikjum á sjö árum hjá Real Madrid. Hann lék áður fyrir Tottenham og Southampton og hefur auk þess verið burðarstólpur velska landsliðsins undanfarinn áratug.
Athugasemdir
banner
banner