Enska úrvalsdeildarfélagið Crystal Palace leggur sitt af mörkum til að hjálpa til í baráttunni gegn kórónuveirunni.
Félagið tilkynnti það í gær að það ætli að gefa allt að 900 máltíðir á viku sem fari svo í góð málefni.
Máltíðarnar fara til heilbrigðisstarfsfólks, eldra fólks og fólks í áhættuhópum, til fjölskyldna sem eiga ekki fyrir mat og til fólks sem er heimilislaust.
Crystal Palace ætlar að halda þessu áfram eins lengi og hægt er á meðan kórónuveirufaraldurinn er í gangi.
Nánar má lesa um málið á heimasíðu Crystal Palace hérna.
Athugasemdir