Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 01. maí 2020 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klopp man ekki eftir fagnaðarlátunum 2012: Ekki drekka áfengi
Klopp var of fullur.
Klopp var of fullur.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, núverandi stjóri Liverpool, man lítið sem ekkert eftir fagnaðarlátunum hjá Borussia Dortmund er liðið varð þýskur meistari árið 2012.

Klopp segist hafa verið of fullur til að muna eftir þeim.

Klopp gerði frábæra hluti með Dortmund og vann hann tvo Meistaratitla með félaginu, þann fyrri 2011 og þann síðari 2012. Hann kom liðinu einnig í úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2013, en þá reyndist Bayern München of sterkt.

„Ég var mjög fullur árið 2011, en árið 2012 man ég ekki neitt. Þið sjáið hvað áfengi gerir við fólk," sagði Klopp í viðtali sem birtist á Twitter-reikningi Dortmund.

„Ekki drekka áfengi, annars tapið þið minningum frá mikilvægum augnablikum í lífi ykkar."

Sjá einnig:
Klopp fagnaði blindfullur - Vaknaði í vörubíl í bílskúr


Athugasemdir
banner
banner
banner