Simon Kjær er fyrirliði danska landsliðsins sem mætir Króatíu í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í kvöld.
Kjær býst við afar erfiðum leik og telur að Kasper Schmeichel verði í lykilhlutverki á milli stanganna.
„Kasper er ótrúlega mikilvægur fyrir okkur jafnt innan sem utan vallar. Hann verður í algjöru lykilhlutverki gegn Króötum," sagði Kjær.
„Kasper hefur verið frábær á mótinu og er að sanna sig á stærsta sviðinu. Við viljum komast lengra í þessu móti, við erum með sterkt lið. Það er lítið um veikleika."
Danir eru ekki búnir að tapa keppnisleik síðan í október 2016 en Króatar töpuðu bæði fyrir Íslandi og Tyrklandi síðasta haust.
Athugasemdir