Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 01. júlí 2018 20:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: ESPN 
Marcelo verður ekki í byrjunarliðinu
Marcelo fór af velli gegn Serbíu.
Marcelo fór af velli gegn Serbíu.
Mynd: Getty Images
Marcelo, vinstri bakvörður og lykilmaður í brasilíska landsliðinu, verður ekki í byrjunarliðinu gegn Mexíkó 16-liða úrslitunum á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi á morgun.

Marcelo fór meiddur af velli gegn Serbíu í síðasta leik og engar áhættur verða teknar á morgun.

Bakmeiðsli eru að hrjá vinstri bakvörðinn en eftir leikinn gegn Serbíu kenndi liðslæknir Brasilíu, Dr. Rodrigo Lasmar, dýnunum á hóteli brasilíska landsliðinu um meiðslin.

Felipe Luis, bakvörður Atletico Madrid, kom inn á fyrir Marcelo gegn Serbíu og hann mun byrja á morgun.

Marcelo gæti komið eitthvað við sögu en hann mun ekki byrja.
Athugasemdir
banner
banner
banner