Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 01. júlí 2019 15:30
Magnús Már Einarsson
Casillas byrjaður að æfa aftur eftir hjartaáfall
Mynd: Getty Images
Iker Casillas, markvörður Porto, mætti í dag til æfinga á undirbúningstímabilinu ásamt liðsfélögum sínum.

Hinn 38 ára gamli Casillas fékk hjartáfall á æfingu hjá Porto fyrir tveimur mánuðum síðan.

Í kjölfarið var óttast að Casillas yrði að leggja hanskana á hilluna en nú hefur hann fengið grænt ljós á að halda áfram í fótbolta.

Casillas á magnaðan feril að baki og hann er nú á leið í nýtt tímabil með Porto.

„Aftur til vinnu. Fyrsti dagur," skrifaði Casillas við mynd sem hann birti á Twitter í dag.


Athugasemdir
banner
banner
banner