Á miðnætti urðu margir leikmenn í helstu deildum Evrópu samningslausir. Sky Sports tók saman draumalið leikmanna sem eru án félags í augnablikinu.
Gary Cahill - Varnarjaxlinn ætlar að finna sér nýtt lið eftir fá tækifæri hjá Chelsea á síðasta tímabili.
Thomas Vermaelen - Belginn hefur lítið spilað hjá Barcelona vegna meiðsla. Hann leitar nú að nýjum vinnuveitendum.
Alberto Moreno - Eftir fasta bekkjarsetu hjá Liverpool er Moreno á förum. Sevilla og Villarreal hafa áhuga.
Denilson - 31 árs miðjumaður sem var á mála hjá Arsenal á sínum tíma. Hefur verið í basli í heimalandinu Brasilíu og er án félags.
Yohan Cabaye - Gæti verið á leið aftur til Crystal Palace eftir að samningi hans hjá Al Nasr í Sádi-Arabíu var rift.
Daniel Sturridge - Hinn 29 ára gamli Sturridge hefur ekki náð meira en tíu mörkum á tímabili síðustu fimm ár hjá Liverpool. Mikið meiddur og á bekknum. Hvert fer hann í sumar?
Athugasemdir