KR lagði Breiðablik 2-0 í toppslag Pepsí Max-deildarinnar á Meistaravöllum í kvöld. Óskar Örn Hauksson fyrirliði KR sagði spilamennskuna ágæta hjá KR og að þeir hefðu haft góð tök á leiknum heilt yfir.
Lestu um leikinn: KR 2 - 0 Breiðablik
„Spilamennskan var bara ágæt, við getum alveg spilað betur. Við byrjum vel og náum góðum tökum á leiknum en svo ná þeir aðeins tökum af leiknum. Svo tökum við yfir í seinni hálfleik og gerum vel, tilfinningin var góð í leiknum og við stjórnuðum leiknum vel."
Óskar kom útaf eftir högg á mjöðm en segist vera klár í næsta leik og hrósaði Ægi Jarli Jónassyni fyrir sína innkomu í leikinn.
„Ég fékk högg á mjöðm og gat ekki beitt mér almennilega, þá er gott að fá alvöru menn inn og Ægir kom hrikalega flottur inn. Svona er þetta, ég er pínu laskaður eftir þennan leik miðað við marga aðra leiki en það eru 5 dagar í næsta leik og ég verð klár þá.
Athugasemdir