Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 01. júlí 2019 19:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pogba mætti ekki til æfinga í dag
Mynd: Getty Images
Leikmenn Manchester United mættu aftur til æfinga í dag og er undirbúningstímabilið að hefjast.


Franski landsliðsmaðurinn Paul Pogba mætti ekki í dag. Hann hefur verið orðaður við Juventus og Real Madrid. Hann sagði fyrr í sumar að hann gæti farið.

Pogba er búinn að vera mikið á ferðalagi síðustu vikur og var hann í Bandaríkjunum um helgina. Samkvæmt Mirror þá munu leikmenn United gangast undir líkamleg próf næstu daga og var Pogba ekki á meðal þeirra sem áttu að mæta í dag. Hann mun væntanlega mæta seinna í vikunni.

David de Gea, Daniel James og Marcus Rashford, sem skrifaði undir nýjan samning í dag, voru einnig á meðal leikmanna sem ekki voru sjáanlegir á æfingasvæðinu á þessum mánudegi.

Aaron Wan-Bissaka, sem var nýlega keyptur frá Crystal Palace, er í fríi þar sem hann var að keppa með enska U21 landsliðinu á EM.
Athugasemdir
banner
banner
banner