Real Madrid hefur óskað eftir leyfi frá spænsku úrvalsdeildinni til að spila fyrstu þrjá leikina á komandi tímabili á útivelli.
Verið er að endurbæta Santiago Bernabeu heimavöll Real Madrid og félagið getur ekki spilað á vellinum í byrjun tímabils af þeim sökum.
Real Madrid er að endurbæta leikvanginn fyrir 800 milljónir evra og engu er til sparað þar.

Leikjaplanið í spænsku úrvalsdeildinni verður gefið út á fimmtudaginn og þá kemur í ljós hvaða útileikjum Real byrjar á.
Sjá einnig:
Á að verða besti íþróttaleikvangur heimsins
Athugasemdir