Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   mán 01. júlí 2019 21:44
Egill Sigfússon
Rúnar um Alex Frey: Óttumst það versta, vonum það besta
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR.
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR lagði Breiðablik 2-0 í toppslag Pepsí Max-deildarinnar á Meistaravöllum í kvöld. Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var ánægður með vinnslu sinna mann í kvöld.

Lestu um leikinn: KR 2 -  0 Breiðablik

„Við lögðum á okkur mikla vinnu, vörðumst vel, lokuðum svæðum og lokuðum vel á Blikana. Þeir fengu ekki mörg færi en áttu reyndar eitt færi sem Beitir varði frábærlega. Ég er bara ánægður með sigurinn fyrst og fremst."

Alex Freyr Hilmarsson fór útaf meiddur og segir Rúnar að þetta líti alls ekki vel út en þeir voni það besta.

„Þetta lítur ekki vel út, við óttumst það versta en vonum það besta. Þetta lítur ekki vel út og við höfum miklar áhyggjur, við vitum vonandi sem fyrst hvað þetta er. Finnur á ennþá svona 2-3 vikur í að geta æft og spilað á fullu með liðinu, hann er ennþá með verki sem eru að hrjá hann."

Rúnar er ánægður með leikmannahóp KR en segist geta þurft að horfa í kringum sig ef meiðslin hjá Alex eru alvarleg.
Athugasemdir
banner
banner
banner