Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 01. júlí 2019 10:30
Magnús Már Einarsson
Samúel Kári maður leiksins eftir glæsilegt mark
Samúel Kári Friðjónsson.
Samúel Kári Friðjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Samúel Kári Friðjónsson var valinn maður leiksins hjá NRK eftir 1-1 jafntefli Mjöndalen og Viking í norsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi.

Samúel Kári skoraði mark Viking með glæsilegu langskoti í slána og inn.

Viking er eftir leikinn í sjötta sæti deildarinnar á meðan Mjöndalen er í þrettánda sæti.

„Þetta voru tvö stig töpuð," sagði Samúel í viðtali við Aftenposten eftir leik.

Hinn 23 ára gamli Samúel er samningsbundinn Valerenga en hann er í láni hjá Viking á þessu tímabili.
Athugasemdir
banner