mán 01. júlí 2019 17:30
Magnús Már Einarsson
Vieira ætlar ekki að taka við Newcastle
Mynd: Getty Images
Patrick Vieira, þjálfari Nice, segist ekki ætla að taka við stjórastöðunni hjá Newcastle.

Rafa Benítez er hættur sem stjóri Newcastle og Vieira er einn af þeim sem hafa verið orðaðir við stöðuna.

Vieira segist hins vegar ekki vera að fara neitt.

„Ég ætla að vera hjá Nice í lengri tíma. Ég stefni ekki á að fara annað," sagði Vieira á fréttamannafundi í dag.

„Mér hefur alltaf liðið vel hér með fólkið sem er í kringum mig. Ég sé mig ekki annars staðar en hjá OGC Nice."
Athugasemdir
banner
banner