Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 01. ágúst 2020 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Víkingur Ólafsvík: Þessu vísum við algjörlega á bug
Frá Ólafsvíkurvelli.
Frá Ólafsvíkurvelli.
Mynd: Gunnar Örn Arnarson
Víkingur Ólafsvík hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfarið á sögum sem fóru á kreik eftir að leikmaður liðsins greindist með kórónuveiruna í gær.

Hörður Snævar Jónsson, ritstjóri 433.is, sagði á Twitter: „Samkvæmt því sem ég heyri þá vissu framkvæmdarstjóri, stjórn og þjálfari Ólafsvíkur af því að leikmaður félagsins hefði hitt einstakling í sóttkví. Hann æfði ekki í upphafi vikunnar en fékk að æfa á miðvikudag. Kostar Ólsara ansi mikið núna."

Ólsarar hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þessu er neitað.

Yfirlýsing Víkings Ólafsvík
Að gefnu tilefni vilja stjórn og starfslið Víkings Ó. koma eftirfarandi á framfæri.

Í kjölfarið á því að leikmaður félagsins greindist með Covid 19 smit síðdegis í gær hafa verið uppi sögur um að stjórn og starfsfólk félagsins hafi verið meðvitað um að viðkomandi leikmaður ætti að vera í sóttkví án þess að hafa brugðist við á réttan hátt. Þessu vísum við algjörlega á bug.

Hið rétta er að um leið og umræddur leikmaður fékk vitneskju um að einstaklingur sem hann umgekkst væri komin í sóttkví, og var skömmu seinna greindur með smit, var leikmaðurinn tekinn út úr hópnum og í kjölfarið sendur í próf. Umræddur leikmaður, sem og aðrir sem að liðinu koma, fóru þá í sjálfskipaða sóttkví þar til niðurstöðurnar lágu fyrir.

Vissulega má færa rök fyrir því að ákjósanlegt hefði verið að stjórnendur félagsins hefðu fengið vitneskju um málsvexti fyrr og við hörmum að svo hafi ekki verið. Því verður hins vegar ekki breytt úr þessu og ekkert annað í stöðunni en að líta fram veginn, virða reglur um sóttkví og koma svo sterkari til baka að tveimur vikum liðnum.

Það ætlar sér enginn að smitast af þessari veiru og því ekki til neins að kenna einum né neinum um. Tilfellið er komið í hendur smitrakningarteymis og líkt og fram kom í fyrri yfirlýsingu munum við fylgja fyrirmælum þeirra í einu og öllu.

Athugasemdir
banner
banner