Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   lau 01. september 2018 17:26
Hulda Mýrdal
Rakel: Förum bara fjallabaksleiðina að þessu
Icelandair
Rakel í leiknum í dag.
Rakel í leiknum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rakel Hönnudóttir var að vonum ósátt eftir 2-0 tap fyrir sterku liði Þýskalands í undankeppni HM á Laugardalsvelli í dag.

Úrslitin þýða það að Ísland getur ekki farið beint á HM og þarf að vinna Tékka til að eiga möguleika á að komast í umspil.

Lestu um leikinn: Ísland 0 -  2 Þýskaland

„Þetta var bara erfiður leikur, þær voru mjög góðar og þetta fór eins og þetta fór," sagði Rakel eftir leikinn. „En við komum bara sterkari inn á þriðjudaginn og við ætlum okkur að komast á HM. Við förum bara fjallabaksleiðina að þessu."

Ísland byrjaði leikinn af miklum krafti og náði góðri pressu á þýska liðið. Hvað gerist svo?

„Við kannski lendum aðeins í því að vera að elta í pressunni. Það er bara mjög erfitt þegar maður lendir í því. Ætli það sé ekki það sem gerðist."

Íslandi gekk erfiðlega að skapa sér færi í leiknum. Rakel var sammála því. „Þær eru með mjög gott lið. Við vissum alveg að við myndum fá ekki fá mörg færi í þessum leik en þyrftum að nýta það sem við fengjum. En það bara tókst ekki í dag því miður."

Rakel þurfti að yfirgefa völlinn undir lok leiksins. Hvað kom fyrir? „Ég fékk bara brjálæðan krampa í kálfann."

Rakel er staðráðin í því að vera tilbúin fyrir leikinn á þriðjudaginn á móti Tékklandi. Ísland þarf að vinna Tékkland á þriðjudaginn og treysta á önnur úrslit til að komast í umspil um sæti á HM.

„Mér líst bara vel á leikinn. Við bara tökum því verkefni og komum bara sterkari í leikinn á þriðjudaginn. Við ætlum okkur bara sigur þar, Við ætlum á HM!"

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner