Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   þri 01. október 2019 18:35
Ívan Guðjón Baldursson
Courtois tekinn útaf í hálfleik - Sagður vera með magakveisu
Mynd: Getty Images
Thibaut Courtois var í byrjunarliði Real Madrid sem er að spila við Club Brugge í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í þessu.

Courtois, sem hefur verið frekar slakur frá komu sinni til Spánar í fyrra, fékk tvö mörk á sig frá Emmanuel Dennis og leiddu gestirnir óvænt 0-2 í hálfleik.

Courtois var tekinn af velli í hálfleik og í fyrstu var breytingin talin vera taktísk. Nú segja spænskir miðlar þó að Belginn hafi verið tekinn útaf vegna veikinda, hann sé með magakveisu.

Alphonse Areola kom inn í staðinn og er búinn að halda markinu hreinu allan síðari hálfleikinn. Nú eru nokkrar mínútur eftir af venjulegum leiktíma og staðan jöfn á Bernabeu, 2-2.
Athugasemdir
banner
banner
banner