Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 01. október 2019 13:49
Magnús Már Einarsson
De Bruyne ekki með í kvöld - Óvíst með framhaldið
Mynd: Getty Images
Kevin De Bruyne, miðjumaður Manchester City, verður ekki með liðinu gegn Dinamo Zagreb í Meistaradeildinni í kvöld.

Belginn meiddist á nára í sigrinum á Everton um helgina.

City staðfesti í dag að De Bruyne verði ekki með í leiknum í kvöld en ekki fylgdi sögunni hversu lengi hann verður frá.

„Það veltur á því hversu vel endurhæfing gengur hjá læknaliðinu hversu lengi hann verður fjarverandi," sagði í yfirlýsingu City.

Manchester City mætir Wolves á sunnudag áður en tveggja vikna landsleikjahlé tekur við.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner