Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 01. október 2019 22:12
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Tottenham og Bayern: Gnabry fær 10
Mynd: Getty Images
Það voru aðeins nokkrir leikmenn í liði Tottenham sem þóttu skila ásættanlegri frammistöðu í 2-7 tapi gegn FC Bayern í riðlakeppni Meistaradeildarinnar fyrr í kvöld.

Heung-min Son var bestur í liði heimamanna og fær hann 7 í einkunn fyrir sinn þátt. Hann skoraði opnunarmarkið og lagði mikla orku í leikinn.

Serge Aurier, Jan Vertonghen, Danny Rose og Harry Winks þóttu slakastir í dag.

Serge Gnabry skoraði fernu og fær fullkomna einkunn. Robert Lewandowski og Joshua Kimmich sköruðu einnig framúr í liði gestanna.

Tottenham: Lloris (5), Aurier (4), Alderweireld (5), Vertonghen (4), Rose (4), Winks (4), Ndombele (6), Sissoko (6), Alli (5), Kane (6), Son (7)
Varamenn: Eriksen (5), Lucas (5), Lamela (5)

Bayern: Neuer (7), Pavard (6), Boateng (6), Süle (6), Alaba (6), Kimmich (8), Tolisso (7), Coutinho (7), Gnabry (10), Coman (7), Lewandowski (8)
Varamenn: Martinez (6), Perisic (7), Thiago (6)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner