Valur og danski sóknarmaðurinn Emil Lyng hafa komist að samkomulagi um starfslok hans hjá félaginu. Þetta staðfesti Emil í samtali við Fótbolta.net.
„Ég vil sjá hvað mun bjóðast. Ég er klárlega opinn fyrir því að vera áfram í Reykjavík," sagði Emil við Fótbolta.net.
Hinn þrítugi Emil kom til Vals síðastliðinn vetur en náði ekki að festa sig í sessi í byrjunarliðinu.
Emil skoraði eitt mark í ellefu leikjum í Pepsi Max-deildinni en hann var þrívegis í byrjunarliðinu.
Árið 2017 skoraði Emil níu mörk með KA í Pepsi-deildinni en eftir það lék hann með Dundee í skosku B-deildinni og Szombathelyi Haladás í úrvalsdeildinni í Ungverjalandi áður en hann samdi við Val.
Athugasemdir